Fjárhagsleg heilsa og bandið hans Bubba

Ég var að horfa á þáttinn hans Bubba á Stöð 2 rétt í þessu. Áður en þátturinn hófst kom auglýsing um fjárhagslega heilsu. Það var ekki spurning um hvort heldur hvenær þetta væri gert opinbert, þá meina ég fjárhagslega heilsan.

Hversu margir þjást ekki af fjárhagslegri vanheilsu? Vakna alla daga og það fyrsta sem tékkað er á er staðan á hlutabréfamarkaði og peningamörkuðum almennt. Með öðrum orðum geðheilsa dagsins veltur á útkomunni dag frá degi. Mikið hlýtur þetta að vera erfitt.

Fyrir allt of marga er nógu erfitt að ná endum saman bara til að lifa og sjá sér og sýnum fyrir helstu nauðsynjum en þetta eylífa peningalotterý og umræða um það gerir hvern mann snarvitlausan.

Okkar einstaki og frábæri Bubbi er þessa daganna með þátt sem kallast Bandið hans Bubba. Sjaldan ef nokkru sinni hef ég horft á jafnmarga opinbera þá fávisku að kunna ekki sín mörk. Það er ekki hægt að sitja yfir sjónvarpsþætti þar sem fólk tekur þátt í söngvarakeppni og 95% þátttakenda er ekki einu sinni hæft til að syngja við varðeld á ættarmóti.

 


Dýrðlegt er í Dalnum

 

 

Mosfellsdalur

 

Dýrðlegt er í Dalnum,

umvöfnum fjallasalnum,

Þar eru:

Rósabændur og söngfuglar,

grautvíxlaðir graðfolar,

yxna kýr og ofvitar,

nóbelsskáld og gullmolar,

frekjusvín og drykkjusvolar,

ljóðskáld og þurfalingar,

hestamenn og monthanar,

þingmenn og snillingar,

listamenn og letingjar,

klerkur, kirkja,

ég er hættur að yrkja. 

 

Óskar Þ.G. Eiríksson

 

Óskar Þ.G. EiríkssonVestur-Skaftfellingurinn Óskar Þ. G. Eiríksson er mörgum Mosfellingum að góðu kunnur. Eftir hann birtist fjöldi greina og ljóða um árabil í bæjarblöðum Mosfellsbæjar sem vöktu mikla athygli. Óskar dvaldi löngum stundum í Mosfellsdalnum við skriftir og er Dalurinn honum ætíð hugleikinn.

Mér datt í hug að birta þetta meistaraverk Óskars vegna þess að  Dalbúar voru að þreyja þorrann í gær. Þar sem aðeins var liðin vika frá þorrablóti Mosfellinga í íþróttahúsinu að Varmá var látið nægja að bregða sér einungis í betri skóna til að taka nokkur spor. 

Því miður var aðalsöngvari hljómsveitarinnar búinn að yfirgefa samkvæmið þegar við mættum og var hljómsveitin því eins og höfuðlaus her. 

Myndin er af Óskari fyrir utan ráðhús Mosfellsbæjar.


Svakalegur var hann

Oft er það nú þannig að maður þarf að horfa eða hlusta á góða list nokkrum sinnum áður enn maður meðtekur hana og fellur fyrir henni. Hver þekkir það ekki að hafa keypt sér hljómplötu og það var ekki fyrr en í fimmta skiptið sem henni var rennt á fóninn að hún fór að virka. 

Í seinni tíð hefur áhugi minn á boxíþróttinni vaxið mikið, þökk sé Sýn, Bubba og Ómari. Vissulega er það þannig með fremstu íþróttamenn að kunnáttu þeirra og færni er bókstaflega hægt að líkja við listaverk. Svakalegur var Muhammad Ali. Þvílíkar hreyfingar og þvílíkur taktur, þeim mun oftar sem ég horfi á box og spái í, þá er mér ljóst hverslags listamaður hann var í hringnum.


Valdarán og svekkelsi

Í nýjasta tölublaði Mosfellings er grein eftir Hönnu Bjartmars bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar sem fyrir margar sakir vekur upp ótal spurningar. Hún hefur grein sína á því að fárast út í myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Látum það liggja á milli hluta, atburðarásin í borgarstjórn Reykjavíkur undan farna mánuði hefur verið með ólíkindum og ég held að flestir séu sammála því.

Þegar bæjarfulltrúinn Hanna sér hinsvegar ástæðu til að tala um sérstaka og skondna blöndu í meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, það er Vinstri grænna og Sjálfstæðismanna, þá endanlega sannfærðist ég um hversu valdagræðgi getur leikið fólk grátt. Af hverju er meirihlutinn í Mosfellsbæ skondinn blanda að mati bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar? og hvernig dettur nokkrum pólitíkus í hug að tala um skondna blöndu? Er einhver ein blanda skondnari en önnur? Snýst málið ekki á endanum um að menn nái saman og vinni að heilindum bæjarfélagi sýnu til heilla?

Karpið um bæjarstjórastólinn í Mosfellsbæ á milli Samfylkingar og Framsóknar varð þess valdandi að flokkarnir komust ekki í meirihluta. Við Vinstri græn komum þar hvergi nærri. Félagar Hönnu í Samfylkingunni hafa lagt talsvert á sig til að ná meirihluta víða um land og er samstarf við Sjálfstæðisflokkinn, höfuð andstæðinginn eins og þau hafa hamrað á undanfarin ár, þar engin undantekning. Svona skrif bera vott um sjálfumgleði og hroka.

Hanna talar um hneisu Vinstri grænna í Mosfellsbæ í umhverfismálum í grein sinni en nefnir ekkert dæmi því til stuðnings. Hvaða hneisu er hún að tala um? Er það 160% aukning til umhverfismála á milli ára hjá núverandi meirihluta í þeim málaflokki? Þarna skilur hún lesendur eftir með eitt stórt spurningamerki. Eitt dæmi um hneisu Vinstri grænna í Mosfellsbæ í umhverfismálum hefði verið vel þegið í greininni. 

Maður spyr sig eftir lestur allra þeirra greina sem hafa komið frá fulltrúum Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ undanfarið kjörtímabil, hver er höfuð andstæðingur Samfylkingarinnar í raun?


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband