mið. 31.12.2008
Lærir svo lengi sem lifir
Árið 2008 var mjög skemmtilegt og lukkulegt ár hjá mér og mínum og þakka ég fyrir það. Það var einnig fyrir margar sakir lærdómsríkt.
Við fluttum úr Álafosskvosinni í nýtt, fallegt og gott hús í Leirvogstungu. Fórum í bráðskemmtilega Spánarferð með ömmu Millý.
Amma, Birna og Lína á Spáni.
Ættin hittist nánast öll á einstaklega skemmtilegu ættarmóti á Hvammstanga á árinu.
Á ættarmótinu skemmtilega.
Fórum með Birnu í frábært ferðalag með nýja tjaldvagninn í Stykkishólm og á Þingvelli, þar vorum við m.a. þegar hitametið var slegið og upplifðum þá hreint ævintýri.
Ég og Hallsteinn, minn elskulegi frændi að gera kóteletturnar klárar á grillið.
Sigga og Lína að gera Birnu fína á tjaldstæðinu á Stykkishólmi. Okkar góðu vinir, Hallsteinn og Sigga komu í heimsókn til okkar á tjaldstæðin í Stykkishólmi og áttum við saman einstaklega skemmtilegar stundir.
Þetta er ein af mínum uppáhalds myndum af Birnu og auðvitað tók Hallsteinn frændi hana.
Amma Gerður og Bæringur komu til okkar á heitasta degi sumarsins á Þingvöllum og áttum við saman einstaklega góða stund.
Sigrún systir, uppáhalds frænka Birnu kom mjög óvænt í heimsókn til okkar á Þingvelli þegar degi var farið að halla og að venju var Birna alsæl að sjá frænku.
Ég var útskrifaður eftir mín veikindi í september af Sigurði Björnssyni. Birna er að klára fjórða árið í ballett hjá Brynju, í Ballettskóla Eddu Scheving og gengur vel og nú er hún einnig komin með hestadellu. Óli er að venju á kafi í fótboltanum, hann hefur æft með Aftureldingu frá fimm ára aldri. Óli er allur að koma til eftir þrálát meiðsl í ökkla frá því í haust og er farinn að æfa að kappi að nýju.
Þetta er nýleg mynd af Óla og Erlu, þau eru einstaklega náin og góð hvort við annað.
Afi Óli fór á Skjól, hjúkrunarheimili og vissulega var það erfitt en hann fær góða ummönun og hjálp við sitt hæfi og við heimsækjum hann öll reglulega. Á myndinni er hann með Birnu, Línu og Millý konu sinni.
Lína mín langsokkur, nei ég meina leikskólakennari, er alltaf á Reykjakoti og líður vel þar. Þetta var nú svo eitthvað sé nefnt úr fjölskyldulífinu á nokkuð hraðri yfirreyð.
Bæjarmálin í Mosó gengu vel á árinu og samstarf meirihlutans er traust og öflugt. Stóru málin á þeim vettvangi eru vissulega, bygging væntanlegs Krikaskóla, nýtt og glæsilegt miðbæjartorg með einstaklega frumlegu listaverki, vinna við ævintýragarð er hafin, brátt rís menningarhús, kirkja og framhaldsskóli verður stofnsettur í gamla Brúarlandshúsinu svo eitthvað sé nefnt.
Starf okkar Vinstri grænna í Mosfellsbæ er blómlegra en nokkru sinni fyrr og hefur félögum fjölgað meira en nokkru sinni fyrr á árinu sem senn er liðið.
Vinirnir Hilmar og Kalli.
Hilmar Gunnarsson, vinur minn, keypti Mosfelling, bæjarblað sem ég stofnsetti og gaf út í tæp sjö ár. Vart gat ég hugsað mér betri arftaka. Hilmar er samviskusamur fagmaður fram í fingurgóma, listrænn og skemmtilegur.
Að lokum. Það er einstakt að upplifa sanna vináttu, það gerði ég meir en nokkru sinni fyrr á þessu ári. Það er notaleg tilfinning. Vinátta er og verður aldrei, hvorki keypt né seld. Annaðhvort er hún eða ekki.
Ég upplifði einnig tilfinningu sem ég á erfitt með að útskýra, það er löngun til að hitta fólk sem ég hef einungis átt samskipti við í bloggheimum, fólk sem ég hef aldrei hitt en hefur með skrifum sínum og þankagangi, fallegum texta og einlægni unnið hug minn allan..
Góð vinátta og samstarf byggist alltaf fyrst og síðast á gagnkvæmri virðingu.
Gleðilegt ár óska ég ykkur öllum kæru vinir, hafið það alltaf sem best.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
lau. 20.12.2008
Jólastjarnan komin á tréð
Eftir nokkuð líflegan verslunarleiðangur í dag og m.a. kaup á jólatré, var mesti spenningurinn hjá Birnu að koma því inn í hús og byrja að skreyta það.
Á heimili foreldra minna var vaninn að taka jólatréð ekki inn fyrr en á Þorláksmessu og lengi vel man ég eftir að hafa ekki séð það fyrr en á aðfangadag og þá í fullum skrúða.
Þennan sið höfðum við einnig lengi vel, ég og mín fjölskylda en höfum nú undanfarin ár tekið jólatréð inn nokkrum dögum fyrir jól og skreytt það með börnum okkar.
Í kvöld var stóri dagurinn hjá Birnu og tilhlökkunin var greinilega mikil.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
fim. 18.12.2008
Niðurgreiðslur til foreldra hækkaðar og gjaldskrár fyrir leik- og grunnskóla óbreyttar að sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 17.12.2008
Jólablað Vg í Mosfellsbæ komið út
Jólablað okkar Vinstri grænna í Mosfellsbæ er komið út og að vanda má þar lesa um það sem á daga okkar hefur drifið á árinu sem senn er liðið.
Hér fyrir neðan er leiðari minn í blaðinu.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Bjart framundan, þrátt fyrir allt
Það eru vissulega erfiðir tímar hjá okkur Íslendingum um þessar mundir en misjafnlega þó. Hundruð einstaklinga og fjölskyldna berjast í bökkum og þeim fjölgar ört þar sem baráttan virðist sérlega erfið. Þá ríður á hjá okkur stjórnmálamönnunum að standa vörð um þá einstaklinga sem standa höllum fæti.
Staða sveitarfélaganna er vissulega einnig misjöfn. Hjá okkur Mosfellingum er hún með skárra móti og jafnvel betri en víðast hvar í kringum okkur. Með ábyrgri stjórnsýslu og öflugum embættismönnum höfum við reynt að fleyta skútunni áfram en um leið höfum við gætt þess að hafa borð fyrir báru. Sú fyrirhyggja kemur sér vel fyrir okkur Mosfellinga um þessar mundir.
Það traust, sem er borið til okkar Vinstri grænna um þessar mundir, er meira á landsvísu en nokkru sinni fyrr. Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum nýtur flokkurinn nú mests fylgis allra stjórnmálaflokka á Íslandi.
Stefna Vinstri grænna er skýr og afdráttarlaus. Aðalmarkmið flokksins eru að standa þétt að baki öllum grunngildum samfélagsins. Lykilatriði okkar er mennta- og heilbrigðiskerfi, sem er jafnt fyrir alla, og einlæg umhverfisvernd. Um þá stefnu stöndum við vörð og höfum alltaf gert. En nú er ljóst að við þurfum að skera niður og spara í útgjöldum bæjarfélagsins og framkvæmdum. Góð þverpólitísk samstaða hefur náðst um þær ákvarðanir þar sem allir hafa lagst á eitt.
Það hefur verið ómetanlegt fyrir okkur Vinstri græn í Mosfellsbæ að standa í brúnni í góðu meirihlutasamstarfi og hafa fengið að taka þátt í því að móta mannlegt og fallegt samfélag í Mosfellsbæ. Nú þegar öldurnar ganga yfir okkur öll og tímarnir eru erfiðir ríður á, sem aldrei fyrr, að standa vörð um stefnumál okkar Vinstri grænna og grunngildi samfélagsins.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár, kæru Mosfellingar.
Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar og oddviti Vinstri grænna í Mosfellsbæ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
sun. 14.12.2008
Fallegt lag
Sting hefur lengi verið einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum, bæði á sólóferli sínum og eins í hinni stórkostlegu hljómsveit, The Police. Trommuleikari The Police var engum líkur og hafði mjög afgerandi og skemmtilegann stíl.
Við hjónin fórum að sjá Sting í Laugardalshöll þegar hann heimsótti okkur og þá urðum við satt að segja fyrir svolitlum vonbrygðum. Kallinn virtist þreyttur og illa upplagður en ég fyrirgef honum það.
Þetta er eitt af mörgum meistaraverkum hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
lau. 13.12.2008
Ásláttur hans var engum líkur
Gunnar Jökull var og er óumdeildur snillingur í trommuleik. Hann hefði getað leikið með hvaða rokkhljómsveit sem er. Ásláttur hans var gríðar öflugur en um leið mjög músíkalskur og hljómurinn úr trommusettinu hjá honum var engu líkur.
Hljóðfæri sem tónlistarmenn hafa í höndunum skipta vissulega miklu máli en galdurinn er samt alltaf að lokum þess sem leikur á það að ná því besta fram úr því. Það er ekki sama hvernig spilað er á hljóðfæri, hversu dýr eða fín þau eru.
Trommuleikur Gunnars Jökuls hljómaði alltaf vel.
Ég set hér inn eitt gamalt meistaraverk frá Trúbrot og þarna er að mínu mati ein allra magnaðasta innkoma trommuleikara í lag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
fim. 11.12.2008
Frábært framtak
Mikið fagna ég þessu góða framtaki og vonandi koma margir til með að næla sér í mörg ógleymanleg og falleg lög.
Að þetta skuli svo gert í minnigu eins af okkar ástsælustu tónlistarmanna, Rúnars Júlíussonar og á útfarardegi hans er stórkostlegt.
Blessuð sé minning Rúnars Júlíussonar.
![]() |
Tónlistargjöf á mbl.is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 11.12.2008
Bræður glíma
Hér glíma bræðurnir Jón og Pétur, Eyþórssynir.
Glímugen hljóta að vera til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 10.12.2008
Frændur glíma
Eyþór Pétursson er af mörgum talinn einn af glæsilegustu glímuköppum Íslands fyrr og síðar. Hann er jafnframt einn sá sigursælasti. Hann þótti glíma af einstakri fegurð.
Krækjan hans varð einnig þekkt og engri lík eins og sjá má í þessu myndbandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)