mán. 10.12.2007
Rangfærsla
Ég tel rétt að leiðrétta mikla og klaufalega rangfærslu sem gætir í nýlegri bloggfærslu hjá Varmársamtökunum.
Stjórnarkonan Sigrún Pálsdóttir heldur þar fram að ég undirritaður hafi tekið þátt í að gera samning við Helgafellsverktaka þann 2. júní 2006. Við embætti mínu var ég ekki búinn að taka þann dag og kom því á engan hátt að þeim samningi.
Ég hvet stjórnarkonuna Sigrúnu Pálsdóttur til þess að leiðrétta þessa meinlegu villu.
Karl Tómasson.
Nýtt á mos.is11. desember 2007 13:29 |
Varðandi bloggfærslu á heimasíðu Varmársamtakanna. |
Vegna bloggfærslu á heimasíðu Varmársamtakanna http://varmarsamtokin.blog.is/ þar sem vitnað er til samninga Mosfellsbæjar við landeigendur undir yfirskriftinni Sjónarspil í stað samráðs þykir Mosfellsbæ rétt að vísa til stuttrar greinargerðar, sem ber nafnið Afstaða Mosfellsbæjar, og varðar skrif Varmársamtakanna. |
Bloggar | Breytt 11.12.2007 kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 10.12.2007
Áskorun til allra bloggara
Kæru bloggarar, ég fékk hugmynd sem ég vona að geti orðið að veruleika. Það er að við stofnum sjóð sem gæti kallast Jólabloggsjóðurinn.
Allir bloggarar sem vilja vera með leggi krónur 1000 inn á reikning sem rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar.
Í framhaldinu verði opnuð síða hjá Mæðrastyrksnefnd sem gæti orðið árlegur viðburður þar sem allir sem leggi til sitt framlag inn á þeirra reikning séu nafngreindir og fái þar með vissu fyrir því að þeirra framlag hafi farið í réttar hendur. Þar með eru þeir einnig orðnir bloggvinir Mæðrastyrksnefndar árið 2007.
Hvernig lýst ykkur á þetta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
fös. 7.12.2007
Jón Gnarr, Jesú og leiklistin
Ég var að horfa á sjónvarpsþáttinn Loga í beinni og þar var Jón Gnarr einn af viðmælendum.
Jón Gnarr stóðst ekki próf í Leiklistarskóla Íslands og Jón Gnarr hefur verið skammaður fyrir að gera lítið úr Jesú.
Jón Gnarr er einn besti leikari sem við eigum og ekki hefur hann farið leynt með aðdáun sína á Jesú.
Ég á mynd af Jesú eftir Jón Gnarr og hún er ein af mínum uppáhalds og verður alla tíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 5.12.2007
Löng bið eftir öli
Er það forsvaranlegt að þurfa að bíða í tugi mínútna eða jafnvel klukkustundir eftir afgreiðslu? Nei, ég held að flestir séu sammála um að það þætti ekki góð þjónusta í dag. Flestir sætta sig við einhverjar tafir hjá tannlækninum, heimilislækninum eða hárskeranum en slík bið getur einnig reynt á þar.
Nú þegar blessuð jólin nálgast þá var mér hugsað til þess þegar ég fór með pabba að ná í jólaölið í Ölgerð Egils Skallagrímssonar sem þá var í Þverholti. Mikið óskaplega var það stór partur af jólunum og allri stemningunni í kringum þau að standa með pabba í röðinni í langan tíma með tvo brúsa og bíða eftir því að fá þá áfyllta. Ég man að okkar brúsar voru hvítir með rauðum grófriffluðum töppum. Það voru allar gerðir af brúsum í röðinni og engir eins.
Iðulega voru brúsarnir geymdir utandyra og mér er minnisstætt að þeir voru orðnir nokkuð bólgnir þegar lýða fór á jólin.
Í minningunni er þetta fallegur og skemmtilegur tími og öll biðin vel þess virði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
þri. 4.12.2007
Mosfellingur
Ég vil endilega benda, gömlum Mosfellingum, bloggvinum mínum og öðrum gestum sem áhuga hafa á að kynna sér hvað um er að vera í Mosfellsbæ á bæjarblaðið Mosfelling.
Mosfellingur, sem hefur nú á nýju ári sinn sjöunda árgang, kemur að jafnaði út á þriggja vikna fresti. Þar er hægt að lesa heilmikið um það sem hæst ber í Mosfellsbæ.
Slóðin er einfaldlega: mosfellingur.is
Bestu kveðjur úr Mosó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
mán. 3.12.2007
Billi Start og Gildran
Vinur minn Brynjar Klemensson, betur þekktur sem (Billi Start) fagnar um næstu helgi fimmtugs afmæli sínu. Leiðir okkar Billa lágu saman fyrir rúmum tuttugu árum og höfum við brallað ýmislegt saman síðan. Billi er mikill tónlistaráhugamaður og var hann um árabil samferðamaður hljómsveitarinnar Start og þaðan er að sjálfsögu viðurnefni hans fengið. Hann er liðtækur með gítarinn og treður upp við ýmis tækifæri.

Árið 1981 fengum við félagarnir í Gildrunni sem þá hét Pass að hita upp fyrir Start í Félagsgarði í Kjós. Það var mikil upplifun fyrir okkur ungu mennina úr Mosfellsbæ að fá að spila með þessum frábæru tónlistarmönnum og góðu drengjum sem að við áttum svo eftir að kynnast miklu betur síðar. Alla tíð síðan hefur verið mikill samgangur og vinátta á meðal okkar félaganna og höfum við marg oft troðið upp saman eftir það við ýmis tækifæri. Eftir að Start lagði upp laupana gekk Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari Start til liðs við Gildruna.

Á efstu myndinni erum við félagarnir allir saman í efri röð: Sigurgeir, Krtistján, Pétur, Nikulás, Davíð og Eiríkur í neðri röð: Billi, Friðrik, Kalli, Biggi og Jón. Á þeirri næstu ég og Billi á Álafoss föt bezt og á þeirri neðstu ég og Pétur heitinn Kristjánsson, Pétur heldur á bróderaða albúmi Gildrunnar sem hann gerði á sinn einstaka hátt alltaf jafn mikið grín af og er vitnað í þá sögu í bókinni um Pétur.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)