Gildran - Huldumenn

Það er óneitanlega gaman að upplifa það að titillag á fyrstu hljómplötu okkar Gildrufélaga, Huldumenn, sé nú bókstaflega farið að skríða upp á vinsældarlista á útvarpsstöðvum tæpum 24 árum eftir að það var gefið út.

Lagið er vissulega magnað og það hef ég svosem alltaf vitað enn þetta er samt svolítið skrítið allt saman.

Þegar að við félagarnir ákváðum að halda tónleikana í Mosó og hljóðrita, þá byrjuðum við á því að æfa 33 lög. Auðvitað vissum við alltaf að við þyrftum að skera niður þann lagafjölda fyrir tónleikana og væntanlega hljómplötu og enduðum við á því að velja 20 lög.

Valið á þessum lögum reyndist okkur auðvelt og erum við allir full sáttir við það í dag.

Val á fyrsta lagi tónleikanna og um leið þá á plötunni var pínu hausverkur, því verður ekki neitað, en eins og fyrri daginn komumst við allir að samkomulagi. Lagið skal verða Huldumenn.

Það sem hefur komið okkur hvað mest á óvart á tónleikum okkar nú undanfarið, er að þetta gamla lag okkar er algerlega að slá í gegn. Það virðist sem hinn þjóðlegi taktur lagsins og texti hafi góð áhrif á tónleikagesti okkar og landa, það er ákveðinn baráttu andi í því sem okkur veitir ekkert af nú um mundir sem m.a nær sennilega í gegn.

Við erum allir fullir þakklætis fyrir frábærar viðtökur um land allt og eigum eins og ég hef áður skrifað eftir að fara víða á nýju ári og hlökkum mikið til.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

 


Takk fyrir okkur

Gildran eftir

Takk fyrir frábærar móttökur á nýju plötunni okkar og tónleikum undanfarið.

Við erum allir, gömlu rokkararnir, bókstaflega í skýjunum.

Við ætlum að fara um allt land á nýju ári og spila fyrir landa okkar.

Sjáumst eldhress.

Gildran.


Rvk - Vestmannaeyjar 12. og 13. nóv 2010

Gildran útg

 

Kæru vinir og félagar.
Platan okkar verður komin í allar helstu plötubúðir landsins mánudaginn 8. nóvember.
Við ætlum að halda glæsilega útgáfutónleika í Austurbæ föstudaginn 12. nóvemer.
Við verðum í Vestmannaeyjum laugardaginn 13. nóvember.
Hins vegar tökum við generalprufuna okkar í Logalandi laugardaginn 6. nóvember.
Kæru vinir og félagar nú er bara að fjölmenna í Austurbæ og víðar og sjá gömlu refina fagna útkomu sinnar nýjustu plötu og það live.

Sjáumst vonandi sem flest!!! 

 

Miðasala fer fram á Miði.is og hér má sjá auglýsingu frá þeim.

Hin goðsagnakennda rokkhljómsveit Gildran fagnar nú útkomu nýrrar tónleikaplötu sem ber nafnið Vorkvöld.

Þann 1. maí síðastliðinn áttu þeir Gildrufélagar; Birgir Haraldsson söngvari og gítarleikari, Karl Tómasson trommari, og Þórhallur Árnason bassaleikari 30 ára samstarfsafmæli. Af því tilefni héldu þeir afmælistónleika í Hlégarði Mosfellsbæ.

Hljómsveitin Gildran, hefur nú sem endranær verið skipuð ofangreindum ásamt Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara sem hefur verið samferða þeim félögum síðastliðin 20 ár. Á hljómleikunum lék ennfremur með þeim hljómborðsleikarinn Vignir Stefánsson.

Gildran var stofnuð árið 1986 og frá stofnun hefur hún gefið út 6 hljómplötur: Huldumenn (1987), Hugarfóstur (1988), Gildran 1989, Ljósvakaleysingjar (1990), Út (1992) og Gildran í 10 ár (1997). Sjöunda plata þeirra, Vorkvöld (2010), er fyrsta hljómleikaplata þeirra félaga. Á henni er ennfremur hljóðversúgáfa af nýjasta lagi þeirra „Blátt blátt“ sem er eftir Birgi Haraldsson við texta Vigdísar Grímsdóttur.

Í tilefni af útgáfunni efna Gildrumenn til útgáfutónleika þar sem öllu verður tjaldað.

Tónleikarnir verða föstudagskvöldið 12.nóvember í Austurbæ í Reykjavík.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband