fös. 30.11.2007
Vilt þú komast í heitar umræður á Mbl?
Hver er ekki alsæll með það að vera í heitu umræðunum á Mbl? Minna má nú sjá og lesa sumstaðar. Ég hef verið svo lánsamur að nafn mitt hefur verið þar inni í nokkra mánuði. Geri aðrir betur. Ég fann líka upp þessa snilldar leið til þess og nú skal ég loks gefa ykkur leyniuppskriftina að því.
Leitið uppi leik sem gengur undir nafninu Kalli Tomm, takið þátt, reynið að vinna og málið er dautt. Þið þurfið ekkert að skammast ykkar fyrir það og láta einhverja halda að þið séuð bara að taka þátt til að komast í þær heitu og "málefnalegu". Reyndar er til önnur leið sem er vinsæl til að komast í heitar umræður, hún er að tala um eitthvað neðan beltis, skammast út í einhvern eða eitthvað, helst með dónaskap og lítilsvirðingu, það getur líka gengið upp.
Svo er líka annað ráð en það er aðeins á fárra færi. Það er að skrifa fallegar og mannbætandi greinar. Ég á nokkra slíka bloggvini og einn þeirra skrifar varla færslu án þess að komast í heitar umræður. Einhvernvegin er ég samt nokkuð viss um að það sé ekkert kappsmál hjá þeim ágæta bloggara.
Mikið skil ég þá bloggara vel sem láta það fara í taugarnar á sér að einhver leikur sé alltaf í heitu umræðunum, auðvitað á slíkt ekkert heima þar, því er ég hjartanlega sammála. Þetta eru engar umræður, þetta er leikur. Samt koma nú stundum upp umræður í leiknum, það má ekki gleyma því.
Ég er að spá í að gefa út jólaspil. Hver vill vera með?
Hver er maðurinn???
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
fös. 30.11.2007
Framsýni, áreiðanleiki og metnaður
Á bæjarstjórnarfundi sem haldinn var þann 21. nóvember s.l. voru fyrstu drög meirihluta bæjarstjórnar að fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 kynnt. Mikil fjölgun íbúa setur mark sitt á áætlunina.Tekju- og gjaldaliðir hækka því umfram verðbólgu. Óhætt er að segja að mikill metnaður, framsýni og áreiðanleiki einkenni fjárhagsáætlunina.
Gert er m.a. ráð fyrir óbreyttri útsvarsprósentu, óbreyttum prósentum í álagningu fasteignagjalda, verulegri hækkun á framlagi til íþrótta- og tómstundarmála. Framlag til umhverfismála er stóraukið og vegur þar þyngst ráðning umhverfisstjóra sem jafnframt mun sinna málefnum staðardagskrár 21.
Jafnframt er gert ráð fyrir því að á árinu 2008 fari fram vinna við að samtvinna starf í frístundaseljum og almennu grunnskólastarfi þannig að til verði heilsdagsskóli í fullmótaðri mynd fyrir yngstu bekki grunnskólans. Þegar þessu markmiði er náð gefst tækifæri til að fella niður gjaldtöku fyrir frístundasel þannig að nám og viðvera í grunnskólum verði gjaldfrjáls. Jafnfarmt er gert ráð fyrir mikilli aukningu í framlögum til lista- og menningarsjóðs.
Ég vil nota tækifærið og þakka sviðsstjórum og öðru embættisfólki bæjarins fyrir þá miklu vinnu sem það hefur lagt á sig við fjárhagsáætlunargerðina, ljóst er að allir hafa lagst á eitt. Álagið á alla stjórnsýslu bæjarins er mikið í svo ört stækkandi bæjarfélagi.
Um þessar mundir fer fram viðamikil stefnumótunarvinna undir stjórn Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra sem gert er ráð fyrir að ljúki í lok janúar. Miklar vonir eru bundnar við að sú vinna skili miklum og góðum árangri sem létta muni allt álag og um leið stórbæta alla þjónustu bæjarfélagsins.
Mörg önnur spennandi verkefni eru nú einnig í burðarliðnum. Vinna við miðbæjarskipulag er langt komin. Vinna dómnefndar vegna fyrirkomulags í Krikaskóla er á lokastigi. Auglýst hefur verið eftir tillögum að nýju útilistaverki sem reist verður á torginu við hlið Kaupþings banka, gegnt Kjarna og nú er að hefjast vinna við undirbúning að samkeppni um ævintýragarð svo eitthvað sé nefnt.
Það eru spennandi tímar framundan í Mosfellsbæ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 28.11.2007
Mosfellsbær fyrr og nú
Í mínum huga er Mosfellsbær alltaf sveit og bær og það er gaman að eiga þá minningu. Ég man nefnilega þegar rollurnar hans Hauks á Helgafelli gerðu sig heimakomnar um miðjar nætur í garðinn við heimili mitt, Markholt 4. Markholt var fyrsta gatan sem byggð var í Mosfellssveit, svo komu Lágholt, Dvergholt, Byggðarholt og allar hinar fallegu göturnar sem prýða nú bæjarfélagið. Þá var pabbi minn Tómas Sturlaugsson skólastjóri Varmárskóla.
Seinna, eða árið 1970 gaf hann kost á sér fyrir hönd vinstrimanna og óháðra til setu í sveitastjórn. Fyrrnefndur Haukur á Helgafelli sat í fyrsta sæti og pabbi í öðru. Þeir gömlu félagarnir unnu glæstan kosningasigur og það sem meira var að eftir kosningar mynduðu þeir meirihluta sveitastjórnar með Sjálfstæðismönnum. Fyrir hönd Sjálfstæðismanna mynduðu með þeim meirihlutann Jón M. Guðmundsson bóndi á Reykjum og Salóme Þorkelsdóttir Reykjahlíð. Í minnihluta sat Axel Aspelund, þá búsettur í Hlíðartúni, hann var teppamaður á þeim tíma í harðri samkeppni við Álafoss. Sveitastjóri var Hrólfur Ingólfsson, hann tók píputóbak í vörina, það er mér alltaf jafn minnisstætt.Þrjátíu og sex árum síðar myndaði ég, örverpið hans pabba ásamt Vinstri grænum meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar með Sjálfstæðismönnum. Svona geta örlögin oft verið skrítinn.
Pabbi og Salóme Þorkelsdóttir fyrrverandi forseti alþingis voru miklir vinir og það var mér sannur heiður að hafa fengið að taka þátt í útnefningu hennar að heiðursborgara Mosfellsbæjar.
Á efri myndinni er gamla sveitastjórnin. Efst til vinstri: Haukur, Axel og pabbi. Neðri röð, Hrólfur, Salóme og Jón M.Á neðri myndinni er núverandi bæjarstjórn ásamt heiðursborgaranum. Efst til vinstri: Jónas Sigurðsson, Karl Tómasson, Haraldur Sverrisson, Marteinn Magnússon og Hafsteinn Pálsson. Neðri röð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingiskona og fyrrverandi bæjarstjóri, Salóme Þorkelsdóttir, Herdís Sigurjónsdóttir og Hanna Bjartmars.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
mið. 21.11.2007
Geðblendill
Einhvernvegin felli ég mig aldrei við nafnið bloggari, afhverju veit ég ekki en tel þó aðal ástæðuna hjá mér vera að nafnið sé fjarri íslenskri tungu. Því tel ég að finna þurfi eitthvað annað heiti yfir þessa áhugasömu og ötulu stétt manna sem hefur svo margt til málanna að leggja.
Öll þekkjum við það, að talað er um að skiptast á skoðunum og öll þekkjum við það að talað er um að blanda geði. Ég kem því hér með tillögu. Í stað nafnsins bloggari, legg ég til að það verði
Geðblendill
Er þetta ekki snaggaralegt og þjált orð?. Við erum að skiptast á skoðunum og við erum að blanda geði m.a. í rituðu máli. Hvernig lýst ykkur á þessa hugmynd??? Reyndar tel ég að orðið ritblendill gæti einnig gengið upp.
Mikið væri gaman að fá ykkar skoðun á þessu.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
þri. 20.11.2007
Bloggalþýðan og blogglæðurnar
Nokkrum sinnum hef ég látið þá skoðun mína í ljós að bloggið sé án vafa eitt það besta og merkilegasta sem upp hafi komið fyrir íslenska tungu og menningu hin síðari ár. Á þessari trú minni verð ég alltaf staðfastari.
Hundruð og jafnvel þúsundir íslendinga sitja við skriftir, skiptast á skoðunum og þankagangi í gríni og alvöru hvern dag og oftar en ekki og sem betur fer á málefnalegan hátt. Er þetta ekki gott fyrir tungu okkar og menningu? Auðvitað eru draugar inn á milli í þessum heimi eins og öðrum en ég tel ástæðulaust að eyða bleki í þá lágkúru að þessu sinni.
Á meðal minna bloggvina, eins og vafalaust flestra annarra er til að mynda fólk sem hefur haft margt fróðlegt og uppbyggilegt fram að færa og oft unun að lesa og setja sig inn í þeirra þankagang og lífsviðhorf og hafa tækifæri til þess hvern dag. Að hafa jafnframt tækifæri til þess hvern dag að koma með athugasemdir, spurningar og hrós til fólks sem fæst við þessi skrif er einnig ómetanlegt. Bloggarar eru: iðnaðarmenn, stórstjörnur, húsmæður, pólitíkusar,verkamenn, læknar, leigubílstjórar og nemar. Með öðrum orðum, fólk úr öllum stéttum.
Oft er talað um alþýðumanninn, manninn sem er yfir ekkert hafinn og talar máli alþýðunnar. Fyrir kosningar telja pólitíkusar t.d. oft gott að tilheyra þeim fjölmenna hópi. Í bloggheimum sér maður ótrúlega oft og glöggt hinn eina sanna alþýðumann, það er manneskjur sem eru tilbúnar að taka þátt í almennum umræðum, hversu merkilegar eða ómerkilegar sem þær kunna nú að vera, axla ábyrgð á skrifum sínum og þankagangi, tilbúnar að gantast, tilbúnar að opinbera fáfræði sína í sumu hverju og tilbúnar að tak þátt í umræðunni, burt séð frá stétt eða stöðu. Svo er auðvitað einnig til fólk sem á þessu hefur engan áhuga, gott og vel.
Blogglæðurnar eru merkilegra fyrirbrygði. Það er fólk sem læðist um heima bloggsins, smjattar á umræðunni öllum stundum og oftar en ekki gerir lítið úr þessari vitleysu allri en þorir ekki fyrir sitt litla líf að taka þátt og opinbera sína skoðun. Jú sumir undir leyninöfnum.
Bloggið er þverskurður af sönnu alþýðufólki sem ég held fyrst og síðast, taki sig í raun ekki of alvarlega.
Er það ekki gott?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
sun. 18.11.2007
Ótrúlegt vald á hljóðfæri
Það er gaman að sjá hina ungu Lidiu Kaminsku fara á kostum á hnappanikku í þessu myndbandi. Hnappanikkan er fyrir margar sakir merkilegt og skemmtilegt hljóðfæri. Í fyrstu er hún með erfiðaðri hljóðfærum að læra á en þegar undirstöðu kunnáttu hefur verið náð er hún tæki sem hægt er að ná ótrúlegri færni og tækni á ef rétt er á spöðum haldið eins og Lidia sýnir sannarlega. Það er einnig gaman að hlusta á viðtalið við hana þar sem hún ræðir um hljóðfærið.
<object width="425" height="355"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/rkM7kT6TF6I&rel=1"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/rkM7kT6TF6I&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 17.11.2007
Hver er fallegasta þulan???
Ég varpaði fram þessari spurningu í gær og fékk nokkur viðbrögð. Í tilefni dagsins þ.e. dags íslenskrar tungu fannst mér upplagt að reyna að fá lesendur til að setja inn hjá mér fallegar þulur að þeirra mati.
Eitthvað fór þetta nú allt fyrir ofan garð og neðan og var m.a. félaga mínum úr tónlistinni Sverri Stormsker mikið niðri fyrir. Ég hefði nú haft meira gaman að því að fá þulu frá Sverri.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
lau. 17.11.2007
Kalli Tomm
Ég fékk keflið án þess að hafa unnið fyrir því en mín er ánægjan kæru vinir.
Hver er maðurinn?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (139)
fös. 16.11.2007
Hver er fallegasta þulan?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)