Alltaf herðast reglurnar um aukið öryggi

Sagað

Ég tók á dögunum  þátt í umræðum um öryggismál barna á leiksvæðum við skóla. Ljóst er að þær kröfur sem gerðar eru um öryggi virðast hertar með ári hverju og auðvitað er það gott. Í bæklingi sem ég sá og fjallar m.a. um aukið öryggi barna t.d. á skólalóðinni voru nokkrar myndir af hættum sem kölluðu á úrbætur.

Ég verð að viðurkenna að sumt sem ég las þar og sá sagði mér að einfaldara væri að fá alla til að ganga með hjálma svona dags daglega.

Auðvitað er gott að smiðum með sex - sjö eða átta putta fækkar og auðvitað er því m.a. að þakka að reglur um aukið öryggi eru hertar.   


K Tomm fyrir hönd Eddu

Tók við neiðarkeflinu fyrir hönd Eddu, enda ekki þekktur fyrir annað.

Hver er maðurinn???


Velheppnaður aðalfundur VG í Mosfellsbæ

Guðfríður LiljaRétt í þessu var velheppnuðum aðalfundi Vinstri grænna í Mosfellsbæ að ljúka. Sérstakur gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingmaður í Suðvestur kjördæmi.

Ólafur Gunnarsson formaður hóf fundinn á því að fara yfir þau mál sem hæst hafa borið undanfarið ár og að því loknu fóru fram opnar umræður um þau. Þar báru hæst, velferðamál, fræðslumál og umhverfismál.

Guðfríður Lilja hélt í lok fundarins tölu og talaði m.a. mikið um fræðslumál. Guðfríður Lilja bar fundinum einnig góðar kveðjur frá flokksforystunni og sagði samstarf okkar við Sjálfstæðisflokkinn í meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar hvarvetna vekja mikla athygli og með því væri fylgst. Hún sagði einnig að samstarfið gengi augljóslega vel þrátt fyrir mismunandi áherslur í mörgum málaflokkum.

Þetta er fjölmennasti aðalfundur frá stofnun Vinstri grænna í Mosfellsbæ og aldrei hafa félagsmenn verið fleiri. Það gefur okkur byr í seglin og sýnir sterka stöðu flokksins í bænum og að starfið gengur vel.


Er Mosó draumastaðurinn?

Börn í MosfellsbæUndanfarið hef ég verið með spurningu á minni síðu þar sem spurt er um draumastaðinn. Það er engum blöðum um það að fletta að Mosfellsbær er með sterka stöðu í skoðanakönnunninni enn sem komið er.

Nú stefnir allt í að fjölgun í Mosfellsbæ eigi eftir að verða örari á næstu árum en í nokkru öðru bæjarfélagi. Sem gamall og "Mosavaxinn" eru tilfinningarnar blendnar en samt, er ekki rétt að fagna því að gamla sveitin heilli og er ekki rétt að samgleðjast með þeim sem vilja njóta hennar.

Það þýðir ekki að vera eins og heimaríkur hundur alla tíð, þannig er það nú bara.

Það er gott að búa í Mosfellsbæ. 


Þægileg á Álafoss föt bezt

Fötin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld söng Pálmi Gunnarsson ásamt Mannakornum á ógleymanlegum tónleikum á Álafoss föt bezt fyrir bráðum 10 árum.

Í næsta mánuði eru liðin 10 ár frá því að Álafoss föt bezt opnuðu. Ég fann þetta gamla viðtal sem Mbl tók við mig fljótlega eftir að við opnuðum staðinn.

Myndin af húsinu var tekin í morgun en þar er nú Ásgarður, handverkstæði með sína aðstöðu.

Þægileg á Álafoss föt bezt

Í DESEMBER síðastliðnum var opnað veitingahúsið Álafoss föt bezt sem dregur nafn sitt af auglýsingu á gafli hússins sem til margra ára hýsti fyrirtækið Álafoss í Mosfellsbæ. Það voru bræðurnir Karl og Steinar Tómassynir og eiginkonur þeirra, Líney Ólafsdóttir og Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, sem ákváðu að gera húsnæðið upp og starfrækja þar skemmtistað. "Við höfðum það að markmiði að breyta staðnum sem minnst og höfðum upprunalegar teikningar til hliðsjónar og fengum eldgamlar ljósmyndir frá ekkju forstjóra Álafoss, mjög merkilega myndir, og létum smíða glugga og annað eftir þeim," sagði Karl Tómasson.

Þegar ljósmyndari blaðsins leit inn á Álafoss föt bezt var Bubbi Morthens að skemmta og stemmningin róleg en með léttu yfirbragði því popparinn reytti af sér brandarana og sagði sögur. Fólk sat með kaffi eða öl og naut tónlistarinnar í hlýlegu og þægilegu umhverfi. "Við höfum lagt mjög mikið upp úr því að hafa góða tónlist á boðstólum og á hverju fimmtudagskvöldi höfum við verið með blús- og rokktónleika nema núna í sumar þá höfum við tekið smá frí frá því. Okkar helstu tónlistarmenn hafa spilað hér og kunnað mjög vel við andrúmsloftið en húsið á litskrúðuga sögu og var áður notað sem leikfimissalur, sníðastofa, skrifstofur Álafoss, bíóhús á sínum tíma og danssalur."

Að sögn Karls eru Mosfellingar duglegir að sækja staðinn heim en það hafi aukist að íbúar nágrannasveitafélaganna kíkji í heimsókn. "Við bjóðum upp á kaffi, öl og léttar veitingar en helsta aðdráttarafl staðarins er í mínum huga tónlistin, því þeir flytjendur sem hafa spilað hjá okkur tala allir um góðan anda og fínan hljómburð. Það er skemmtileg stærð á staðnum, hvorki of stór né of lítill."


Einn laufléttur Kalli Tomm

Þar sem ég vann keflið tek ég einn laufléttann fyrir svefninn og allir með.

Hver er maðurinn???


Hátíðarútgáfa af Kalla Tomm

Þar sem leikurinn er nú að renna inn í sinn þriðja mánuð verður nú sérstök hátíðarútgáfa. Ég skora á alla að vera með. Nú eru reglur að því tilefni mjög strangar. Sá sem fær nei dettur út en sá sem fær fyrst já heldur einn svar réttinum. Þá er honum eða henni aðeins svarað. Aðrir verða að bíða rólegir þar til hann fær nei.

Koma svo allir með.

Ég hugsa mér  mann!!!


Gamlir og flottir

Geisladiskinn sem inniheldur m.a. þetta lag keypti Lína mín í dag og fæ ég ekki stundlegan frið fyrir því. Ég er búinn að vera með þetta stanslaust í eyrunum frá því klukkan 17:35 í dag. Lagið sem heitir How long er eins og svo margt annað frábært frá þessum gömlu snillingum.

Eagles er í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Njótið vel.

 


UUUuuuuuundursamlegt


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband