Mögnuð skák


Röddin hennar og röddin hans

Mikið óskaplega er ég heillaður af söngröddum Ellýjar Vilhjálms og Hauks Morthens. Við Íslendingar státum af mörgum stórkostlegum söngvurum og hafa þau Ellý og Haukur verið í fremstu röð þeirra.

Ég set hér inn myndband með Ellý og eins og sjá má koma mörg gömul og skemmtileg myndbrot frá gamalli tíð fram í því. Eins er þetta eflaust skemmtilegt myndband fyrir þá sem þjást af bíladellu.

 

Ellý

Þessi hljómplata er ein af mörgum frá Ellý. Hún var hljóðrituð í Englandi í kringum 1966. Með henni lék ensk hljómsveit skipuð úrvals hljóðfæraleikurum.

Haukur Morthens

Ég var svo heppinn að vera árið 1984 á árshátíð á gamla Naustinu þar sem Haukur Morthens ásamt stórhljómsveit lék fyrir dansi. Það er ógleymanlegt. Í myndbandinu hér fyrir neðan syngur Haukur með Erlu Þorsteins. Hún var kölluð stúlkan með lævirkjaröddina og var engri lík.

Erla Þorsteins

Erla Þorsteins

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/tHpvHLk62qI&hl=en&fs=1"></param><param


Gamla Brúarland verður framhaldsskóli

Á fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar þann 13. nóvember s.l. var samþykkt að kennsla í fyrsta framhaldsskóla Mosfellsbæjar hefðist í Brúarlandi. Það er sérlega gaman til þess að vita að fyrsta skóla- og menningarhús okkar Mosfellinga gegni því hlutverki til að byrja með að verða aftur, nú nokkrum áratugum síðar að nýju skólahús. Brúarland er eitt fallegasta hús Mosfellsbæjar, teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Nú verður þetta gamla fallega hús tekið í gegn að innan sem utan.

Brúarland 0 

Anna Kristjáns, bloggvinkona mín, skrifar um skemmtilega endurfundi gamalla skólafélaga og kennaranna Klöru Klængs og Birgis D. Sveinssonar á bloggi sínu í dag. Þar segir m.a.  "Á laugardagskvöldið var svo annað samkvæmi nokkurra krakka sem eignuðust fyrstu skólatöskurnar sínar haustið 1958, fyrir hálfri öld, áttu sínar fegurstu æskuminningar í Brúarlandsskóla og síðar Varmárskóla."

Brúarland

Brúarland 1

Þessar tvær myndir hér fyrir ofan eru teknar af fræðsluskilti við Brúarlandshúsið. Textann samdi Bjarki Bjarnason gamall nemandi í Brúarlandi.

Brúarland Afi 

Afi Lárus skólastjóri Brúarlandsskóla.

Brúarland kennarar

Gamlir kennarar í Brúarlands- og Varmárskóla. Efst til vinstri: séra Bjarni Sigurðsson, Lárus Halldórsson, Sigvaldi Sturlaugsson og Birgir D. Sveinsson. Neðri röð frá vinstri: Tómas Sturlaugsson, Klara Klængsdóttir og Eyjólfur Magnússon. Þessar skemmtilegu tvær myndir hér fyrir ofan fékk ég sendar frá Birgi D. Sveinssyni á dögunum og þakka ég fyrir þessa skemmtilegu sendingu en Birgir á stórt og mikið safn ljósmynda frá gamalli tíð og nýrri úr Mosfellssveit og bæ.

Talandi um Birgi, þá voru í dag haldnir hinir árlegu hausttónleikar Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar í íþróttahúsinu að Varmá. Í vor fagnar þessi fróma sveit 45 ára afmæli. Starf Birgis og allra kennarana sem hafa stjórnað, margir hverjir í áratugi er hreint stórkostlegt. Aðal stjórnandi sveitarinnar í dag er m.a. uppalinn hjá Birgi, það er Daði Þór Einarsson.

undirskrift

Þessi mynd er tekin þegar skrifað var undir samning við Menntamálaráðuneytið um að stofnsettur yrði framhaldsskóli í Mosfellsbæ.

 

 


Í návist sálar

Mig langar að gamni að setja Hér inn viðtal sem við mig var tekið á dögunum og sýnt var í kvöld.

Vinkona mín og sveitungi Ragnheiður Ríkharðsdóttir skoraði á mig og auðvitað sló ég til.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.


Þessi maður!!!


Alþýðumönnum á tillidögum fækkar núna

Fátt er grátbroslegra en að sjá og heyra í "alþýðumönnum" á tillidögum. Þeim mun væntanlega fækka núna. Þeim er ekki treystandi. Þeir sáu um það sjálfir.

Fátt er jafn grátbroslegt og tilgerðarlegt snobb viðhlæjenda á tillidögum. Fólks sem telur sig alþýðufólk og leggur allt í sölurnar til að safna atkvæðum og hilli á þann kostnað.

Nú eiga þessir "snillingar" vonandi ekki lengur erindi sem erfiði. Það stendur yfir hreinsun þessa daganna sem má jafnvel ganga betur. Vonandi á hún eftir að bera árangur. Árangur fyrir okkur öll, ekki aðeins fáa útvalda.

Leiksýning

Hin mikla leiksýning
var loks á enda.
Eins og logandi blys
hafði leikur minn risið
í hamslausri gleði
og friðlausri kvöl,
uns hann féll á ný
í skoplegri auðmýkt
til upphafs síns.
Það var lífið sjálft,
það var leikur minn.
Og ég leit fram í salinn
og bjóst við stjórnlausum fögnuði
fólksins.
En þar var enginn.
Og annarleg kyrrð hvíldi yfir
auðum bekkjunum.

Steinn Steinarr


Fimmhundraðasti bæjarstjórnarfundurinn í Mosfellsbæ

Þann 9. ágúst árið 1987 varð sveitin okkar að bæ. Þann dag var fyrsti bæjarstjórnarfundurinn haldin í Mosfellsbæ.

Í Fyrstu bæjarstjórn Mosfellsbæjar sátu: Þengill Oddsson, fyrir D lista, Aðalheiður Magnúsdóttir, fyrir G lista, Magnús Sigsteinsson, fyrir D lista, Þórdís Sigurðardóttir, fyrir D lista, Óskar Kjartansson fyrir D lista, Oddur Gústafsson fyrir, A lista og Helga A. Richter, fyrir D lista. Fyrsti bæjarstjórinn var Páll Guðjónsson.

Nú rúmu 21 ári síðar var haldinn fimmhundraðasti bæjarstjórnarfundurinn í Mosfellsbæ. Hann var haldinn í nýjum og glæsilegum fundarsal bæjarstjórnar.

Hér koma nokkrar myndir úr nýja og gamla salnum.

500 bæjarstjórn

Fyrsti fundurinn í nýja salnum.

Frá vinstri: Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi Framsóknarmanna, Hanna Bjartmars, bæjarfulltrúi Samfylkingar, Jónas Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari, Karl Tómasson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna og forseti bæjarstjórnar, Haraldur Sverrisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna og bæjarstjóri, Hafsteinn Pálsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson varabæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna og formaður bæjarráðs var forfölluð.

500 bæjarstjórn 2

Að loknum fundi var fagnað. Frá vinstri Björn Þráinn Þórðarson framkvæmdastjóri fræðslusviðs, Unnur V. Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs, Sædís Pálsdóttir, þjónustu fulltrúi, Haraldur Sverrisson og Karl Tómasson.

500 bæjarstjórn 1

Hanna fær heila hersingu yfir sig við prófarkarlestur fundargerðar. Hafsteinn, Marteinn, Karl, Jónas og Stefán Ómar

499 bæjarstjórn

Síðasti fundurinn í gamla salnum.

Pabbi í sveitó

Ég set hér einnig inn að gamni mínu gamla mynd þegar pabbi var í sveitarstjórn Mosfellsbæjar.

Efst til hægri: Haukur Níelsson, Axel Aspelund, Tómas Sturlaugsson. Neðri röð frá vinstri: Hrólfur Ingólfsson sveitarstjóri, Salome Þorkelsdóttir og Jón M. Guðmundsson.


Að gera upp gömul hús

Það hefur verið okkur hjónum mikið hugðarefni að halda í og varðveita það gamla. Þar ber ekki síst varðveisla gamalla bygginga og höfum við á s.l.árum gert upp tvö sögufræg hús í gömlu Álafosskvosinni. Annað þeirra í samvinnu við bróður og mág, að Álafossvegi 22 þar sem handverksstæðið Ásgarður er nú til húsa. Þar lögðum við dag við nótt til að gera húsið upp og settum þar á stofn glæsilegan veitingastað sem átti engan sinn líkan og er mörgum enn í fersku minni.

Þar sóttust margir þekktustu tónlistarmenn landsins eftir að spila og höfðu þeir á orði að í húsinu væri frábær hljómburður og að þar væri einstakt að koma fram. Álafoss föt bezt eins og staðurinn hét fékk viðurkenningu frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna fyrir framúrskarandi framtak og aðstöðu fyrir tónlistarmenn. Kappkostað var að hafa sem menningarlegastan blæ yfir staðnum. Til að mynda voru þar auk vandaðrar tónlistar haldnar myndlistarsýningar sem margar vöktu athygli gesta.

Nokkrum árum síðar festum við kaup á Álafossvegi 18 og gerðum það fallega hús upp frá grunni en það hús var á dögum ullariðnaðarins verbúð verkafólks gömlu Álafossverksmiðjunnar og þar fundum við margar menjar frá gamalli tíð.

Álafosskvosin er í huga okkar einstakur staður þar sem við bæði áttum margar góðar leikstundir í bernsku okkar en einnig var hún oft ógnvekjandi og draugaleg á dimmum kvöldum en þá möluðu ennþá vélarnar í húsum brekkunnar allan sólarhringinn

Það er ánægjulegt og ómetanlegt að hafa átt stóran þátt í uppbyggingu gömlu húsanna í Álafosskvos.

Líney Ólafsdóttir og Karl Tómasson.

Áló 1 + 

Áló 2

Áló 3

Áló 4

Áló 5


Íþrótt framtíðarinnar hjá Íslendingum

Kæru bloggvinir og aðrir gestir endilega gefið ykkur tíma til að sjá þetta myndbrot sem ég hef nú sett á síðu mína.

Ég held að þetta sé sú íþrótt sem við Íslendingar eigum að tileinka okkur. Ég held við getum endanlega slegið í gegn með því. Látið mig þekkja það, við eigum tvo Íslandsmeistarar úr Mosó.

Snóker er málið fyrir okkur sem búum í landi þar sem allra veðra er von.

Ég set hér að gamni stórkostlegt myndbrot af tveimur mestu meisturum þeirrar íþróttar í heiminum. Steve Davis, þarna kornungum meistara meistaranna í íþróttinni frá upphafi og einum allra dáðasta, litríkasta og skemmtilegasta snókerspilara allra tíma Dennis Taylor sem allir snóker áhugamenn elska.

 


Maria Callas


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband