fös. 16.11.2007
Jónas og Megas
Það er magnað að fara um heimahaga Jónasar og þrátt fyrir að 200 ár séu liðin frá fæðingu hanns kemur hann alltaf upp í hugann á þessum slóðum. Dalurinn er einn sá fegursti og Hraun í Öxnadal er einstakt, það eru miklir kraftar á þessum slóðum.
"Kvæðin hafa fylgt sérhverri kynslóð, lesin og sungin á hátíðum og góðum stundum. Þau eru einföld og tær eins og fjallalind". Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti m.a. um ljóð Jónasar á degi íslenskrar tungu.
Megas hefur m.a. verið heiðraður á þessum degi og er því við hæfi að eitt verka hanns fljóti með. Þeir eiga margt sameiginlegt Jónas og Megas.
Nú syngja allir með og við látum nægja fyrstu tvö erindin í Vísum Íslendinga.
Vísur Íslendinga
Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur,
er gleðin skín á vonarhýrri brá?
Eins og á vori laufi skrýðist lundur,
lifnar og glæðist hugarkætin þá.
Og meðan þrúgna gullnu tárin glóa
og guðaveigar lífga sálaryl,
þá er það víst, að beztu blómin gróa
í brjóstum, sem að geta fundið til.
Látum því, vinir, vínið andann hressa,
og vonarstundu köllum þennan dag,
og gesti vora biðjum guð að blessa
og bezt að snúa öllum þeirra hag.
Látum ei sorg né söknuð vínið blanda,
þó senn í vinahópinn komi skörð,
en óskum heilla og heiðurs hverjum landa,
sem heilsar aftur vorri fósturjörð.
Gamli sorrí Gráni
er gagnslaus og smáður
gisinn og snjáður
meðferð illri af.
Hann er feyskinn og fúinn
og farinn og lúinn
og brotinn og búinn að vera
hann er þreyttur og þvældur og
þunglyndur spældur
og beiskur og bældur í huga.
Gamli sorrí Gráni
er gagnslaus og smáður
gisinn og snjáður
meðferð illri af.
Hann er beygður og barinn
og brotinn og marinn
og feigur og farinn á taugum
hann er knýttur og kalinn
og Karoni falinn
ó hvað hann er kvalinn af öllum.
Gamli sorrí Gráni
er gagnslaus og smáður
gisinn og snjáður
meðferð illri af.
Eitt sinn sagði Megas þegar hann var spurður að því af hverju hann semdi svona andstyggilega texta um konur, en fallega og tregafulla texta um hesta? "Það er vegna þess að ég er skíthræddur við hesta, maður veit aldrei upp á hverju þeir taka, kasta manni af baki, eða sparka í mann. Konur eru ósköp meinlausar".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
mið. 14.11.2007
Snoddas var engum líkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 14.11.2007
Ég fagna fyrir hönd Varmársamtakanna
Ég vil nú nota tækifærið og óska Varmársamtökunum innilega til hamingju með að hafa loks slitið öllum tengslum við bloggdólginn Valda Sturlaugz.
Hann og hans fólk hefur undir nafnleynd um margra mánaða skeið verið einn af aðal talsmönnum samtakanna og veist að fólki með slíkri háð og heift að engu tali tekur, þrátt fyrir marg ítrekuð viðvörunarorð mætra sveitunga um hversu lágt samtökin hafa lagst með tengingu sinni við hann.
Ég tel þetta stórt skref í í baráttu samtakanna um hin einu sönnu umhverfismál, því umhverfið snýst ekki síst um manneskjuna. Varmársamtökin hafa því miður farið allt of glannalega fram í sínum baráttumálum og hefur það án vafa stórskemmt fyrir þeirra hugðarefnum.
Ég vona að aðalfundur Varmársamtakanna, sem hafa án vafa sannarlega margt til málanna að leggja fari vel fram og þeirra baráttumál nái hljómgrunni. Það gerist aldrei með þeim aðferðum sem þau hafa beitt undanfarið ár en getur án vafa gerst með breyttum áherslum.
Á það geta kjósendur til nýrrar stjórnar haft mikil áhrif og þar vegur þungt að Bjarki Bjarnason fái glæsilega kosningu.
Karl Tómasson.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
sun. 11.11.2007
Bjarki Bjarnason gefur kost á sér í stjórn Varmársamtakanna

Fáir ef nokkrir hafa viðlíka þekkingu á umhverfi Mosfellsbæjar og Bjarki. Hann hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi þeirra sem hafa staðið fyrir fræðslu- og menningargöngum um bæjarfélagið og hafa ófáir Mosfellingar og fleiri notið hans þekkingar og skemmtilegra frásagna í þeim. Bjarki Bjarnason er m.a. annar höfunda sögu Mosfellsbæjar sem kom út árið 2005.
Það er mikið gleðiefni að Bjarki hafi ákveðið að gefa kost á sér til setu í stjórn Varmársamtakanna.
Ég skora á alla sem vilja umhverfi sínu vel og ekki síst mannlífinu sjálfu að flykkja sér um að tryggja Bjarka Bjarnasyni glæsilega kosningu á komandi aðalfundi Varmársamtakanna sem verður haldinn í Varmárskóla þann 19. nóvember.
Bloggar | Breytt 12.11.2007 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
lau. 10.11.2007
Hvaða þingmaður var að halda ræðu þegar þessi mynd var tekin?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
fös. 9.11.2007
Talaðir þú við Gens í jær?
Það er með ólíkindum hvernig manni tekst stundum að klára jafnvel heila setningu með slíku brengli að hún hljómar nánast eins og talað sé tungum.
Í dag átti ég spjall við vin minn sem er að fara að halda upp á stórafmæli bráðlega. Hann sagði mér m.a annars að hann væri búinn að bjóða Jens í veisluna og hefði gert það í gær.
Þá sagði ég "já! talaðir þú við Gens í jær" Auðvitað ætlaði ég að segja, talaðir þú við Jens í gær.
Um daginn spurði ég konu mína hvað eigum við að hafa í matinn í kvöld, þá sagði hún er ekki upplagt að við höfum spakk og haketí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)