fös. 31.10.2008
Stórkostlegur söngvari
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fös. 31.10.2008
Hnappanikkan er skemmtileg
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fim. 30.10.2008
Vissulega gleðileg tíðindi en staðan er slæm
Það eru vissulega gleðileg tíðindi fyrir okkur Vinstri græn að flokkurinn skuli nú mælast stærri en nokkru sinni fyrr. Það er samt þannig að ástandið í þjóðfélaginu gerir það að verkum að fáir gleðjast. Ekki einu sinni þrátt fyrir að hafa jafnvel fulla ástæðu til.
Við stöndum í baráttu um land allt sem við þurfum að vinna, öll sem eitt, baráttu sem er sennilega harðari en við gerum okkur grein fyrir.
Oft sem áður er sorglegt að lesa skrifin á heimasíðu Framsóknarmanna í Mosfellsbæ. Að þessu sinni er fuglaskoðunarhús í Mosfellsbæ aðal fréttin. Framsóknarmönnum og Samfylkingu í Mosfellsbæ er full kunnugt um það öfluga og góða starf sem unnið er af meirihluta bæjarstjórnar í Mosfellsbæ. Bæjarfélagið er mun betur statt en flest önnur nágrannasveitarfélög. Sú frétt var m.a. ein af aðal fréttum allra fréttamiðla á landinu þegar það kom í ljós nú nýlega.
Nei, fuglaskoðunarhúsið á nú að vera stóri skandallinn í Mosfellsbæ. Maður spyr sig, hvar eru mörkin?
Þetta er m.a framundan og búið að framkvæma í Mosfellsbæ á kjörtímabilinu.
Glæsilegt miðbæjartorg,
útilistaverk,
ævintýragarður,
fræðsluskilti,
gjaldfrír leikskóli fyrir fimm ára börn,
einstakur Krikaskóli,
framhaldsskóli,
hjúkrunarrýmisíbúðir,
fyrst til að skrifa undir jafnréttisstefnu allra bæjarfélaga,
menningarhús og svo framvegis og framvegis.
Er þetta allt saman aukaatriði ?
Mosfellsbær blómstrar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
þri. 28.10.2008
Fallegt lag um rigningu
Þetta er fallegt lag um rigningu og sérlega vel sungið. David Byron söngvari Uriah Heep var að ég held mjög vanmetinn söngvari.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 26.10.2008
Sættir
Fyrir nákvæmlega 20 árum, samdi einn minn besti vinur og samstarfsfélagi í 30 ár, Birgir Haraldsson, undur fagurt lag sem kom út á Hugarfóstri Gildrunnar. Þetta var okkar fyrsta lag sem við hljóðrituðum án söngs.
Á lagið þurfti auðvitað að finna nafn og ég heyrði í því svo mikla sátt við allt og alla. Ég kom með þá hugmynd að lagið ætti að heita Sættir, félagar mínir voru sáttir við það.
Ég var að smella laginu okkar í spilarann minn, endilega hlustið og vonandi verðið þið sátt.
Það er einstaklega góð tilfinning að geta verið sáttur. Sáttur við sjálfan sig, umhverfi sitt, sem og þá sem maður umgengst.
Í þeirri tilfinningu að upplifa mann vera hvorki, meiri né minni, betri eða verri en samferðafólk sitt felst mikill friður, ótrúlegur friður.Virðing, umburðarlyndi og samhyggð er gott leiðarljós í lífinu, við menn og málleysingja.
Með góðri kveðju úr Tungunni.
Bloggar | Breytt 27.10.2008 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
fös. 24.10.2008
Fróðleikur í Mosó
Víða í Mosfellsbæ hefur verið komið upp fræðsluskiltum. Á þeim má sjá gamlar myndir frá þeim stað sem viðkomandi er staddur á þá stundina og einnig lesa nokkra fróðleiksmola um þann stað. Fræðsluskiltin hafa fallið í góðan jarðveg hjá bæjarbúum.
Á síðasta fundi Atvinnu- og ferðamálanefndar Mosfellsbæjar var ákveðið að fjölga þessum fræðandi og skemmtilegu fræðsluskiltum í bæjarfélaginu. Eins og fyrr var Bjarki Bjarnason fenginn til liðs við bæjarfélagið til að velja þeim stað, semja þann texta sem tilheyrir og velja myndir.
Nýjustu fræðsluskiltin verða á eftirfarandi stöðum:
1. Tröllafoss í Leirvogsá
2. Félagsheimilið Hlégarður
3. Seljadalur
4. Leirvogsvatn
5. Við norðvesturenda Hafravatns
6. Undir Hamrahlíð
7. Við Blikastaðakró
Á myndunum hér fyrir neðan má sjá hvernig þessi fræðsluskilti eru hönnuð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
fim. 23.10.2008
Hringtorg fá nöfn
Á síðasta fundi Atvinnu- og ferðamálanefndar Mosfellsbæjar var samþykkt sú tillaga að efna til samkeppni á meðal bæjarbúa um að finna nöfn á þau hringtorg sem liggja á þjóðvegi eitt í gegnum Mosfellsbæ. Fá bæjarfélög státa af eins mörgum hringtorgum og Mosfellsbær.
Góður sveitungi minn og bloggvinur (Sigurður Hreiðar) bar þessa hugmynd upp við mig fyrir um ári síðan að upplagt væri að fá nöfn á hringtorgin til að auðvelda fólki að rata um bæjarfélagið. Vissulega gefur þetta einnig hverju hringtorgi meiri blæ á allan hátt.
Endilega takið þátt í kosningunni kæru sveitungar um nafngiftir á hringtorgin á mos .is sem hefst fljótlega.
Í fundargerð Atvinnu- og ferðamálanefndar segir:
4. | 200810079 - Samkeppni um nafngiftir á hringtorgum í Mosfellsbæ | |
Til máls tóku: KT, GIH, SHj, SDA og SÓJ.Atvinnu- og ferðamálanefnd samþykkir að standa fyrir samkeppni um nafngiftir á hringtorgunum sjö á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ og óskar nefndin eftir því við framkvæmdastjóra stjórnsýslusvið og kynningarstjóra að undirbúa verkefnið. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fim. 23.10.2008
Hugleiðingar um nýja heimsstyrjöld
Nú baðar jörð í blóði, Steinn Steinarr |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 20.10.2008
Þarna þarfnast belgurinn greinilega viðgerðar
Fyrir tuttugu árum síðan vann ég með bróður mínum við orgelsmíðar á Blikastöðum. Það var og er mér ógleymanlegur tími. Þar komst ég í náin kynni við hið magnaða pípuorgel og hvernig slíkt undrahljóðfæri er smíðað og verður til.
Ég var svo heppinn að fá að taka þátt í smíði orgelsins í Lágafellskirkju og einnig hinu stóra og glæsilega hljóðfæri í Digraneskirkju.
Ég lærði einnig að laga gömul harmoníum orgel og því tel ég mig hafa vit á því að þetta hljóðfæri sem leikið er á í þessu myndbandi þarfnast greinilega viðgerðar. Ég er hræddur um að organistinn sem þyrfti að leika á þetta hljóðfæri héldi ekki út heila messu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 19.10.2008
Þá settist fjölskyldan öll fyrir framan sjónvarpið
Nú er þetta bara tómt bull, peningar, hlutabréf, kaupæði og geðveiki. Hver veit nema að Húsið á sléttunni verði endursýnt í kreppunni og við sameinumst öll á ný.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)