Uppspretta kærleikans

Ég hef undanfarna mánuði verið þess heiðursaðnjótandi að haldið er úti bloggsíðu af einhverjum leynimanni sem virðist mér sérstaklega tileinkuð. Auðvitað er það eitt útaf fyrir sig stórmerkilegt að einhver finni hjá sér þörf að gera slíkt. Fyrstu mánuðina nafngreindi hann mig óspart í skrifum sínum en nú undanfarið virðist hann ekki treysta sér lengur til þess, heldur notar þá frægu aðferð að tala undir rós.

Leynimaðurinn, hugrakki, hikar ekki heldur við að leggja dóm sinn á samferðafólk sitt. Á síðu hans er ekki óalgengt að fólk sé kallað geðsjúklingar, kotbændur, vanhæfir embættismenn, eða jafnvel  fjósakallar.

Leynimaðurinn segist flokksbundinn sjálfstæðismaður og því er óhætt að segja að það veki furðu hversu oft hann fárast út í samstarf núverandi meirihluta Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Tilvist okkar Vinstri grænna í því samstarfi virðist honum sérstaklega erfiður biti að kyngja.

Nú spyr maður sig, er leynimaðurinn þegar upp er staðið ekki nógu greindur? Honum fatast svo hratt flugið. Það er sama hvað hann tekur sér orðið fyrir hendur, ekkert gengur upp. Það vill engin lengur þekkja leynimanninn eða hans fólk. Allir hættir að mæta á fundi hjá honum, ekkert fjölmiðlafár í kringum hann, engar athugasemdir á síðuna hans. Með öðrum orðum allt er á niðurleið. Ég tel því rétt að reyna að rétta honum hjálparhönd. Tilfinningagreind er honum ofarlega í huga eins og sjá má á skrifum hans og því er mitt fyrsta heilræði til leynimannsins að lesa sér til um hana og reyna að læra af.   

Til að komast inn á síðu þessa hugrakka manns er auðveldast að fara fyrst inn á heimasíðu umhverfissamtaka sem kenna sig við Varmá og þaðan er slóð inn á þessa síðu sem ber heitið Valdi Sturlaugz. Varmársamtaka Valdi, eins og hann var einhvertíma kallaður breytir reyndar oft um nafn og á það einnig til svona öðru hvoru að fjarlægja part af skrifum sínum og þá einna helst þau sem hann setur inn um miðjar nætur.

Ég hvet alla sem sem hafa áhuga á umhverfismálum, mannrækt, auknu flæði í mannlegum samskiptum og síðast en ekki síst, hafa mikinn kærleika að bera að líta við hjá Varmársamtökunum og vippa sér þaðan yfir á Valda, það er á við marga jóga tíma.


Gott fyrir svefninn og auðvita alltaf


Mosfellingarnir fóru á kostum

Það var gaman að sjá Mosfellingana, þau Bjarka Bjarnason, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Höskuld Þráinsson í spurningaþættinum Útsvar í gær. Í þættinum öttu þau kappi við lið Vestmannaeyjinga og höfðu betur með glæsibrag í skemmtilegum og líflegum þætti. Nú verður spennandi að fylgjast með næstu viðureign og sjá hvort þeim takist jafnvel upp.

Þau Bjarki, Diddú og Höskuldur eru eins og flestir vita fólk með víðtæka reynslu og þekkingu hvert á sínu sviði og held ég að það sé óhætt að vera nokkuð bjartsýnn með framhaldið.

Áfram Mosó!!! 


Er greind vitsmunalegt fyrirbæri ?

Hugtakið greind hefur löngum verið tengt við vitsmunalega hæfileika, skýra hugsun, skynsemi og rök. Hugtakinu greind fylgir oftar en ekki ákveðið mat á hæfileikum manna og umræða um greind og mælingar á henni vekja oft tilfinningaleg viðbrögð.

Tilfinningagreind ýtir við fólki og vekur mismunandi viðbrögð. Margir telja mikilvægi tilfinninga gömul sannindi, heilbrigða skynsemi og benda á að það hafi aldrei leynt sér að maður sem er hálærður á bókina geti verið algjör rati í mannlegum samskiptum. Það fari heldur ekki alltaf  saman að vera góður í fræðunum og geta miðlað kunnáttu sinni til annarra, né að ganga vel í skóla og starfi síða meir.

Tilfinningagreind er miklir hæfileikar af færni og getu sem hefur áhrif á færni einstaklingsins til að takast á farsælan hátt við kröfur og þrýsting  frá umhverfinu. Upplýsingasamfélag nútímans kalla á breytt viðhorf til þekkingar og færni. Það leitar helst eftir starfsfólki sem býr yfir sjálfsöryggi, frumkvæði og samskiptafærni enda  eru kröfurnar mestar um hæfni í mannlegum samskiptum.

Félagsgreind er hæfileikinn til að eiga góð samskipti við aðra, fá aðra til að líða vel, lesa í líkamsmál annarra og hafa samkennd með tilfinningum annarra. Þeir sem hafa til að bera þróaða félagsgreind eru félagslyndir og eru góðir í því að kenna öðrum. 

Þegar öllu er á botninn hvolft er það aðferðarfræðin  sem  við notum í samskiptum sem vegur hæst.

Heimildir að mestu hafðar uppúr grein Erlu Kristjánsdóttur lektor.


Kæru bloggvinir og bloggarar!!!

Þetta er nú bara þannig að þrátt fyrir að maður reyni svona við og við að vera duglegur að rækta vinahópinn, þá stendur maður sjálfan sig að því oftar en ekki að fara oftast sama hringinn á meðal bloggvina þegar tími gefst til. Rétt eins og kýrnar fara alltaf á sama básinn og við mannfólkið viljum helst alltaf setjast í sömu sætin. 

Í mínum huga er bloggið eitt það merkasta og besta fyrirbæri sem upp hefur komið fyrir íslenska tungu og menningu í langan tíma. Munum bara eftir því að vanda okkur.

Áfram með smjerið og fjerið kæru bloggarar með bestu kveðjum frá Kalla Tomm..  


Dagblaðið fréttir ýmislegt, en hvaðan???

Undanfarið hef ég lesið talsvert um persónulega hagi mína, starf Vinstri grænna og bæjarmálin í Mosfellsbæ í DV. Blaðið hafði t.d. af því spurnir að ég væri orðinn lóðareigandi í landi Helgafells og lóðina hafi ég látið skrifa á nafn konu minnar. Á annars mjög kurteisri blaðakonunni sem í mig hringdi mátti greinilega heyra að henni var brugðið að fá þær fréttir að ég hefði aldrei þegið neina lóð í landi Helgafells og því síður að ég ætti lóð sem væri skrifuð á nafn konu minnar.

Nýlega hafði blaðið einnig af því spurnir að hljómsveitin Sigurrós spilaði ekki fyrir umhverfisníðinga eins og t.d. Karl Tómasson, forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Ágætis félagar mínir og nágrannar í Sigurrós kannast ekki við að hafa látið þessi ummæli falla. 

Í dag var frétt í blaðinu um að innan meirihlutans í Mosfellsbæ gætti óróleika og stafaði hann helst af miklum vandræðum mínum við að verja það fyrir baklandi mínu í VG að vera í stöðugum útistöðum við umhverfissinna. (Skrýtið hvað þetta orðalag, að vera í stöðugum útistöðum við umhverfissinna minnir mig á bloggdólg sem lét talsvert að sér kveða um allnokkurt skeið á heimasíðu Varmársamtakanna.) Einnig kom fram að Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi legði hart að mér að sprengja meirihlutann í Mosfellsbæ og mynda nýjan með Samfylkingu og Framsókn.

Hvaðan koma svona "áreiðanlegar" fréttir í DV???????

Þar sem ég hef ekki sóst eftir því að leiðrétta þessar fréttir í DV er nú upplagt að gera það á þessum ritvelli, hæg eru heimatökin. Svandís Svavarsdóttir er ekkert að skipta sér af bæjarmálum í Mosfellsbæ. Samstarfið gengur vel í meirihlutanum. Starf Vinstri grænna hefur aldrei verið blómlegra í Mosfellsbæ og fjölskylda mín leikur á allsoddi þrátt fyrir að eiga ekki lóð í landi Helgafells.

Kær kveðja frá Kalla Tomm. 


Heimsókn þingmanna í Mosfellsbæ

Þingmenn í Mosó
Þingmenn suð-vesturkjördæmis áttu fund með bæjarstjórn Mosfellsbæjar í dag 22. október. Fundurinn var í senn góður og gagnlegur. Bæjarstjóri, Haraldur Sverrisson, fór í upphafi yfir helstu mál sem brenna á okkur Mosfellingum um þessar mundir og að því loknu komu fyrirspurnir frá þingmönnum til okkar bæjarfulltrúanna.  
Að þessu sinni lagði Mosfellsbær m.a. áherslu á að lokið yrði við tvöföldun Vesturlandsvegar í gegnum bæinn, áframhaldandi stuðning við hinar merku fornleifarannsóknir að Hrísbrú í Mosfellsdal, fyrirhugaðan framhaldsskóla og uppbyggingu hjúkrunarrýma en í fyrirliggjandi fjárlögum er fjárveiting bæði til uppbyggingar framhaldsskólans og hjúkrunarrýma.

Sjötug í sjöunda himni

Í Mosfellsbæ er byggð fremur lágreist enda hefur það verið markmið bæjaryfirvalda að halda henni þannig. Undir þessi sjónarmið tek ég og hef gert en ég hef heldur ekki farið leynt með þá skoðun mína að ég tel ekki rétt að útiloka glæsilegt háhýsi á vel völdum stað, enda skrifaði ég um þetta í leiðara Mosfellings fyrir nokkrum árum. Sá fjöldi af þriggja til fjögurra hæða blokkum, sem því miður virðist oft gleymast að huga nægjanlega vel að útliti, taka heilmikið pláss og hreinlega ræna einnig íbúum fjölda smærri bygginga mikilli útsýn.

Algengt er að sjá auglýstar íbúðir í fjölbýlishúsum fyrir 50 ára og eldri, ég get t.d. séð fyrir mér að sá aldurshópur gæti haft forgang með kaup á efri hæðum í slíku háhýsi. Auðvitað kunna all flestir að meta gott útsýni en ég held samt að það sé fyrst af einhverri alvöru þegar á efri ár er komið. Þá er meiri tími til þess að sitja út á svölum eða við stofu gluggann með kaffið og virða fyrir sér fallegu sveitina og nágrenni hennar. Svona bygging glæsilega hönnuð á allan hátt með góðri þjónustu á neðstu hæð er eitthvað sem ég get vel séð fyrir mér. Ég tel ekki rétt að það eigi einungis vera á færi þeirra allra efnuðustu að komast í slíkt hús á góðum stað eins og dæmin sanna t.d. í Reykjavík.

Hvað væri huggulegra en að sitja með gömlu sinni upp á sjöundu, fá sér púrtvín eða sherrý, virða fyrir sér víðáttuna og fara svo kl. 21 í hátíðarsalinn til að spila vist eða taka nokkur dansspor með gömlum sveitungum?


Aftursókn

Framsókn en ekki hvað. Ekki sækjum við aftur? Jú, auðvitað getum við sótt eitthvað aftur. 

Hverslags rugl er þetta eiginlega?

Áfram Afturelding!!!


Maður geggjast úr sveiflu

Ég var að vasast í smá pappírsvinnu og ég vissi ekki fyrr en allir skankar og allt í kringum mig lék á reiðiskjálfi. Oftar en ekki er frúin mín að hlusta á Oscar Peterson einn af sínum uppáhalds tónlistarmönnum sem hún elskar. Ég verð að viðurkenna að ég var farinn að óttast að lungun á trompetleikaranum myndu skjótast út úr trompetinum.

Þetta er náttúrulega makalaus snilld.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband