Mæðgnaslátur

Hinn árlegi mæðgnasláturdagur stendur nú yfir á heimili mínu. Það er ávallt kátt í höllinni þennan dag og amma, mamma og Birna leika á alls oddi. Gömlu kerlurnar fá sér smá reddara og tónlistin á fullu. Betra verður það ekki. 

Húsbóndinn á von á góðum kjamma ásamt öllu tilheyrandi um kl. sjö og sviðasultu og góðum lambalifurskeppum næstu vikur og mánuði.

Amma og Birna

Kjammar

Kærustuparið, Óli minn og Erla höfðu engan tíma fyrir slátrið og því síður áhuga á að snæða með okkur þá dýrindisveislu sem framundan var.

Óli og Erla 10


Galdramaður

Stevie

Stevie Ray Vaughan var sannkallaður galdramaður með gítarinn.

Hann lést í þyrluslysi aðeins 36 ára gamall árið 1990.

 

 


Fyrir Helga Páls


Fyrir Ómar Ragnars


Garðveisla í miðjum hörmungum

Það er óhætt að segja að við Íslendingar göngum nú í gegnum makalausar hremmingar. Stórþjóð og vinaþjóð, að við töldum, Bretar, leggjast lágt gagnvart okkur með framferði sínu og hafa með því nánast gert okkur gjaldþrota. Steingrímur J var vissulega löngu búinn að vara við þessu ástandi en á hann var ekki hlýtt á þeim tíma.

Það sem uppúr stendur í þessari ágjöf allri er samt samstaða okkar Íslendinga. Samstaða sem hefur gert okkur að því sem við erum. Við ætlum okkur aðeins eitt, að vinna okkur upp úr þessum hremmingum eins og öllum öðrum og það ætlum við að gera saman. Burt séð frá allri pólitík.

Í Kastljósi kvöldsins léku gömlu félagarnir í Mezzoforte sitt fræga lag, Garden Party, lag sem náði hæstu hæðum á vinsældalistum víða um heim og ekki síst í Bretlandi. Það hríslaðist um mig einhver notalegur straumur á meðan ég hlustaði á þá félaga. Lína mín keypti þessa plötu á sínum tíma og var hún í sérstöku uppáhaldi hjá henni enda er hún mikill tónlistarunnandi. 

Við tölum öll sama tungumál og við eigum ekki að gera neitt annað núna en að standa saman og vinna okkur upp úr þessum vanda.

Þarna á þessari stundu voru gömlu félagarnir í Mezzoforte greinilega sameiningartákn okkar hjóna með gamla slagarann sinn sem Bretar m.a. héldu ekki vatni yfir.

Stöndum saman öll sem eitt.

 


Kvæði um hund

Það var eitt sinn hundur, horaður, ljótur
og húsbóndalaus að flækjast í borginni,
svo aumur og vesæll og enginn, sem þekkt' hann,
og ekkert, sem veitt' honum huggun í sorginni.

Svo dó hann úr sulti seinni part vetrar,
það var sjálfsagt réttmætt og skynsamlegt af honum,
fyrst heimurinn smáð' hann. - Og hafandi glatað
þeim húsbónda, sem að forsjónin gaf honum.

Sú þraut var að sjálfsögðu þung fyrir hundinn,
en þetta var sjálfskaparvíti hjá honum,
er hann ákvað einn laugardag síðla sumars
að svíkja sinn herra og strjúka frá honum.

Ég ætl' ekki að dæma né áfellast hundinn,
þeir eru svo margir, sem ginu við flugunni,
og lögðust í flæking og hæddu sinn herra,
uns heimurinn lokaði síðustu smugunni.

Steinn portrait-06


Ert þú í spreng?

Ég rakst á þessa mynd á netinu. Ætli einhver sé komin með umboðið?

 

bush_iraqi_pissing 


Hinni miklu leiksýningu er lokið, það eru orð að sönnu

Þann 13. október næstkomandi er liðin öld frá fæðingu ljóðskáldsins Steins Steinarr.

Steinn Steinarr

Leiksýning

Hin mikla leiksýning


var loks á enda.


Eins og logandi blys


hafði leikur minn risið


í hamslausri gleði


og friðlausri kvöl,


uns hann féll á ný


í skoplegri auðmýkt


til upphafs síns.


Það var lífið sjálft,


það var leikur minn.


Og ég leit fram í salinn


og bjóst við stjórnlausum fögnuði


fólksins.


En þar var enginn.


Og annarleg kyrrð hvíldi yfir


auðum bekkjunum.


Mosfellsbær myndar samráðshóp vegna aðstæðna í þjóðfélaginu.

Bæjarráð 900 +Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti greinargerð á fundi sínum í morgun vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í efnahagslífi þjóðarinnar og samþykkti jafnframt að mynda samstarfshóp aðila í bæjarfélaginu um upplýsingagjöf og ráðgjöf til Mosfellinga.

Þá styður bæjarráð heilshugar þá tilkynningu sem stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) sendi frá sér um samstöðu sveitarfélaganna á svæðinu.
 

Greinargerðin:

Á þeim miklu umbrotatímum sem nú ríkja í þjóðfélaginu vill bæjarráð Mosfellsbæjar leggja á það áherslu að einhugur ríkir hjá bæjaryfirvöldum um að veita góða þjónustu nú sem endranær og halda gjaldskrám óbreyttum að sinni.Á liðnum árum hefur Mosfellsbær greitt niður skuldir og ekki þurft að taka lán. Þessi staðreynd auðveldar bæjaryfirvöldum að takast á við breytt fjármálaumhverfi í landinu. Grunnstoðir bæjarfélagsins eru því sterkar. Haldið verður áfram með þær framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem þegar eru hafnar, en hins vegar verður ekki ráðist í nýjar framkvæmdir fyrr en fjármögnun þeirra er tryggð.

 

Samþykktin:

Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir að mynda samstarfshóp um upplýsingagjöf og ráðgjöf til Mosfellinga, vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem skapast hafa í efnahagslífi þjóðarinnar. Formaður bæjarráðs leiði samstarfshópinn.Þegar hefur verið leitað eftir samstarfi við bankastofnanir, heilsugæslu, kirkju og Rauða krossinn, sem tekið hafa vel í samstarf. Einnig verður leitað samstarfs við Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna. Samstarfshópnum er ætlað að mynda samráðsvettvang aðila í bæjarfélaginu, samhæfa þjónustu og miðla upplýsingum til íbúa um þá aðstoð og ráðgjöf sem þeim stendur til boða frá bæjarfélaginu og öðrum aðilum. Heimasíða bæjarfélagsins mos.is verði m.a. nýtt sem upplýsingaveita í þessum tilgangi og þjónustuver virkjað.

Nú verða gildin vonandi önnur. Annað líf betra líf!!!

Ekkert er svo slæmt,

að það boði ekki eitthvað gott.

 

 

 

Svo lít ég bara í kringum mig og sé

alla þessa fegurð nærri mér

Ég tók því sem gefnu

en staldraði aðeins við

Ég er á réttum tíma á réttum stað

Hverjum get ég þakkað fyrir það ?

Ég opnaði augun

og hjartað

 

Fann á ný betra líf

af því ég fór loks að trúa því

að það væri eitthvað annað

eitthvað meir og miklu stærra

en allt sem er

 

Hvort sem það er stórt eða agnarsmátt

ég skynja einhvern meiriháttar mátt

Ég þarf enga sönnun

ég finn og veit og sé

Með allri sinni þekkingu og fé

aldrei gæti maður skapað tré

ég opnaði augun og hjartað

 

Fann á ný betra líf ...

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband