þri. 29.1.2008
Glæsilegt þorrablót Mosfellinga
Það er óhætt að segja að vel hafi tekist til hjá þeim sem stóðu að þorrablóti Mosfellinga sem haldið var í íþróttahúsinu að Varmá á laugardaginn var. Sú vinna sem undirbúningsnefndin lagði á sig dag og nótt til að gera þetta að glæsilegri samkomu tókst eins og best verður á kosið.
Ég vil nota tækifærið og óska þorrablótsnefndinni og öllum þeim sem að þessu komu innilega til hamingju og þakka fyrir mig. Þetta er lang fjölmennasta þorrablót sem haldið hefur verið í Mosfellsbæ og voru gestir um 1000 í húsinu þegar mest var.
Það eitt að bregða sér á barinn gat tekið 30 mínútur. Ekki það að afgreiðslan á veigunum tæki svo langan tíma, það var öðru nær, hún gekk hratt og vel fyrir sig. Ástæðan var, að maður hitti svo marga góða sveitunga á leiðinni sem gaman var að ræða við.
Þarna gekk allt upp, vel að öllu staðið og góðir gestir til fyrirmyndar allt til enda. Það er óskandi að þessi hátíð verði árlegur viðburður í Mosfellsbæ hér eftir.
Á myndinni má sjá veislustjórana Simma og Jóa, sem fóru á kostum, taka við Aftureldingartreyju frá Pétri formanni knattsspyrnudeildar og þorrablótsnefndina á sviðinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
sun. 20.1.2008
Ótrúlegur snillingur
Fyrir nokkru síðan héldu gömlu félagarnir í Led Zeppelin ógleymanlega tónleika þar sem þeir komu öllum viðstöddum á óvart með frábærum flutningi og spilagleði. Viðstaddir hafa vart haldið vatni yfir þessari uppákomu gömlu meistaranna og sannalega er gaman þegar kombekk tekst svo vel til eins og þarna var raunin.
Rytmasveit Zeppelin sem á sér fáa líka var ekki eins skipuð á þessum tónleikum og á árum áður, að þessu sinni sat við trommurnar Jason Bonham sonur Johns Bonham og þótti honum takast sérlega vel til. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Nú eru þeir félagar að hugleiða frekara tónleikahald, ætli þeir bregði undir sig betri fætinum og komi aftur til Íslands?
Ég læt hér fylgja með myndband af John Bonham sem lést langt fyrir aldur fram og er af mörgum talinn besti trommari allra tíma.
Undiraldan og tónlistin í trommuleik Bonhams á sér engan líkan. Hann var sannkallaður snillingur og hefur ásláttur hans verið mörgum hugleikinn og mikill áhrifavaldur.
Ég stend á þeirri meiningu að Gunnar Jökull sé sá íslenski trommari sem komist næst þessum snillingi, ef ekki jafnfætis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
sun. 20.1.2008
Íþróttamenn Mosfellsbæjar
Í dag var hátíðardagur hjá okkur Mosfellingum í Hlégarði þar sem fram fór kjör á íþróttamönnum Mosfellsbæjar. Hafsteinn Pálsson formaður íþrótta-og tómstundanefndar stjórnaði samkomunni. Heiðursgestur var Helga Guðjónsdóttir ný kjörin formaður Ungmennafélags Íslands.
Íþróttamenn Mosfellsbæjar árið 2007
Nína Björk Geirsdóttir golfkona úr Golfklúbbnum Kili og Halldór Guðjónsson hestamaður úr Hestamannafélaginu Herði:
Í umsögn um þau segir m.a.
Halldór er frábær íþróttamaður með mikinn metnað og dugnað í sinni íþrótt. Hann er í fremsta flokki hvar sem hann keppir, auk þess að vera frábær námsmaður sem dúxaði á reiðkennarabraut í Hólaskóla vorið 2007. Árið 2007 var honum sérstaklega afreksríkt þar sem hann náði því m.a. að verða Íslandsmeistari í 250 m skeiði.
Nína hefur verið í golfi í 14 ár og ávallt í Golfklúbbnum Kili. Nína æfir yfir keppnistímabilið að meðaltali 25 tíma í viku. Á veturna æfir hún að meðaltali um 11 tíma á viku. Helsti árangur hennar á árinu var Íslandsmeistari kvenna árið 2007 og Íslandsmeistari í Sveitakeppni kvenna.
Á myndinni má sjá afreksfólkið ásamt Hafsteini Pálssyni formanni Íþrótta- og tómstundarnefndar, Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra og Karli Tómassyni forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 19.1.2008
Vika í stærsta þorrablót Mosfellinga frá upphafi
Í dag er vika þar til að haldið verður stærsta þorrablót okkar Mosfellinga fyrr og síðar. Fjöldi fólks hefur lagt á sig ómælda vinnu til að gera þetta að ógleymanlegri stund og ber að þakka slíkt framtak af heilum hug.
Þorrablót eru sérstaklega skemmtilegur siður og það er gaman að ekkert lát virðist á vinsældum þeirra. Hér í Mosfellsbæ hafa þau verið haldin reglulega en aldrei virðist hafa tekist jafn vel til og nú ef marka má selda miða næstkomandi laugardagskvöld í íþróttahúsið að Varmá.
Sjáumst hress og kát kæru Mosfellingar og aðrir gestir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
lau. 19.1.2008
Jurt ársins
Ég hef ákveðið að hafa það árlegt hjá mér á blogginu að velja jurt ársins. Að þessu sinni hef ég kosið Risahvönn. Ástæða þess er að vara fólk við áhrifum hennar.
Eru hættulegar jurtir allt í kringum okkur?
Sumir virðast halda að allt, eða a.m.k. flest, sem kemur úr náttúrunni, og þá sérstaklega úr jurtaríkinu, sé hollt og heilnæmt. Þá gleymist að mörg af lúmskustu og sterkustu eiturefnum sem við þekkjum koma einmitt úr jurtaríkinu. Fáein dæmi um vel þekkt eiturefni úr jurtaríkinu eru blásýra, nikótín, kókaín, ópíum, digitalis, koffín og kannabis en þar að auki er mikill fjöldi eitraðra efna sem eru minna þekkt.
Fyrir utan þessi eiturefni eru ýmis sem valda ofnæmi með útbrotum, snertiexemi eða gera húðina svo viðkvæma fyrir ljósi að jafnvel innilýsing getur valdið bruna (annars stigs) með vessandi blöðrum og sárum. Plöntur sem geta valdið útbrotum af ýmsum toga er að finna nánast alls staðar í umhverfi okkar, sem stofublóm, garðagróður, grænmeti eða villtar jurtir úti í náttúrunni. Sumar af hættulegustu plöntunum, t.d. risahvannir, er auðvelt að þekkja og þess vegna auðvelt að varast.
Það vill svo til að það er eins á komið með jurtum og mönnum, sumar þeirra eru hollar og heilar í gegn og gott og gaman að umgangast, aðrar baneitraðar, varasamar og í raun best að koma aldrei og hvergi nálægt. Þær geta haft lokkandi yfirbragð sem villir um fyrir mönnum en kemur óvænt í bakið á þeim við nánari kynni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 17.1.2008
Var Trabantinn eftir allt meistaraverk?
Af fáum bílum hefur verið gert jafn mikið grín og Trabant. Stórfróðlegur þáttur í sjónvarpinu í gær vakti upp ýmsar spurningar um sögu þess bíls og ágæti hans.
Góður bloggvinur minn og sveitungi og einn fróðasti Íslendingur um bíla, Sigurður Hreiðar, skrifaði fyrir nokkrum árum stórmerka bók um sögu bílsins á Íslandi og væri gaman að heyra frá honum um þennan þátt og hvort Trabbinn hafi í raun verið meistaraverk og jafnvel langt á undan sinni samtíð.
Ein af mínum fyrstu bloggfærslum var um Trabant og hversu hamingjusamur ég var þegar ég eignaðist hann. Sennilega hef ég aldrei verið ánægðari þegar ég hef eignast nýjan bíl eins og þegar ég eignaðist Trabbann minn og er ég búinn að eiga þá nokkra síðan.
Ný skoðanakönnun
Ég vek athygli á nýrri skoðanakönnun um besta bílinn hér til hliðar á síðu minni. Það skal tekið fram að úrtakið samanstendur af bílum sem ég hef átt í gegnum tíðina og því bæti ég við möguleikanum á einhverju öðru neðst í skoðanakönnuninni.
Ekki ætla ég að vera með áróður á kjörstað frekar en fyrri daginn en ekki er ég í nokkrum vafa um hvað stendur uppúr og tel ég mig nú hafa reynt ýmislegt í bílamálum um dagana. Allt hjal um verð er ekki hlustað á í þessari könnun, þetta snýst um að allt sé tekið með í reikninginn.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Bloggar | Breytt 18.1.2008 kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
mán. 14.1.2008
Auðvitað er Mosfellsbær draumastaður
Undanfarnar vikur hef ég verið með könnun hjá mér um hver draumastaðurinn er. Staða Mosfellsbæjar í könnuninni er sterk en bærinn hefur fengið rúm 25% atkvæða. Sterk útkoma Kirkjubæjarklausturs vekur athygli en þá fögru sveit hafa rúm 8% kosið.
Auðvitað er Mosó draumastaður, látið mig þekkja það. Ég ætla ekkert að tíunda sérstaklega í þessum pistli hvers vegna en nú fer hver að verða síðastur að kjósa í skoðanakönnunni hér til hliðar á síðunni.
Endanleg niðurstaða miðast við 500 atkvæði, það er nú þokkalega marktækt.
Niðurstaðan er ljós, glæsileg útkoma Mosfellsbæjar
Um miðjan dag voru 500 manns búin að taka þátt í kosningu um draumastaðinn og var þá kjörstað lokað eins og getið var um í færslunni hér að ofan. Óhætt er að segja að endasprettur Kirkjubæjarklausturs hafi verið með ólíkindum en þegar 400 atkvæði höfðu verið talin var sveitin fagra með 9,7% atkvæða sem teljast verður glæsilegur árangur.
Sennilega má segja að það hafi verið rangt hjá formanni dómnefndar að nefna Klaustrið sérstaklega í færslunni hér að ofan og það jaðri jafnvel við kosningaráróður á kjörstað en svona fór þetta nú, glæsilegur sigur Mosfellsbæjar er staðreynd.
Ég þakka öllum kærlega fyrir sem tóku þátt.
Sex efstu sætin þegar atkvæðin 500 höfðu verið talin féllu á eftirfarandi hátt.
Mosfellsbær - 25,8%
Kirkjubæjarklaustur - 18,6%
Eitthvað annað - 11,2%
Akureyri - 9,6%
Reykjavík - 9,2%
Hafnarfjörður 8,8%
Bloggar | Breytt 15.1.2008 kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
sun. 13.1.2008
Einlægni í söng og texta
Ein af mínum fyrstu bloggfærslum var um Gylfa Ægisson og í kvöld horfði ég á viðtalsþátt við hann á Stöð 2 með Jóni Ársæls. Ég var löngu orðinn aðdáandi Gylfa áður en ég kynntist honum persónulega, í dag erum við mátar og spjöllum reglulega saman, það er gaman að þekkja Gylfa Ægisson og upplifa manngæskuna sem hann hefur að bera.
Hér kemur ein af mínum fyrstu bloggfærslum.
Það er eitthvað í fari Gylfa Ægissonar tónlistarmanns sem hefur höfðað til mín allt frá barnæsku. Ég held að það sé einlægnin í lögum hans og textum, samt veit ég ekkert hvað veldur. "Það er ekki hægt að fela neitt í tónlistinni" sagði einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum, Sting, "það kemst alltaf upp".
Þetta eru orð að sönnu. Tónlistin er galdur eins og öll önnur list og það ber að virða hana þrátt fyrir að hún verði vinsæl á þorrablótum, árshátíðum eða í óskalögum sjúklinga. Lög Gylfa Ægis njóta mörg hver og hafa notið óhemju vinsælda við slík tækifæri og það er gott en þau eru líka falleg og einlæg. Þess vegna ber þeim að fá þá virðingu sem þau eiga skilið. Ég setti af tilefninu nokkur lög frá Gylfa á fóninn hér til hliðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fös. 11.1.2008
Horft um öxl og fram á veg
Nú þegar nýtt ár er gengið í garð langar mig að stikla á stóru um það sem liðið er og hæst ber í bæjarmálunum í Mosfellsbæ. Þegar á heildina er litið er ég mjög sáttur við gang mála hjá okkur Mosfellingum á liðnu ári og það er gaman að hafa fengið tækifæri til þess að vinna að framgangi Mosfellsbæjar með öllu því góða fólki sem þar leggur hönd á plóg. Verkefnin í svo ört stækkandi bæjarfélagi eru mörg og ærin en auðvitað er aldrei svo að ekki megi betur gera en að því er að sjálfsögðu unnið öllum stundum að gera sem flestum til hæfis.
Byggingarframkvæmdir og nýr bæjarstjóri
Því er ekki að neita að byggingarframkvæmdir í þremur nýjum og glæsilegum hverfum gera umhverfi okkar hálftætingslegt um þessar mundir en það er tímabundið ástand og taka þessi hverfi á sig betri mynd með degi hverjum. Bæjarbúar hafa sýnt þessum stórframkvæmdum mikinn og góðan skilning og ber að þakka það.
Eins og allir vita lét Ragnheiður Ríkharðsdóttir af embætti bæjarstjóra á síðasta ári og kvöddum við þar litríka, harðduglega og skemmtilega konu. Ég vil nota tækifærið og þakka Ragnheiði gott og skemmtilegt samstarf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi á alþingi. Nýr bæjarstjóri, Haraldur Sverrisson, hefur um árabil starfað að bæjarmálum í Mosfellssbæ og hefur mikla og góða þekkingu á þeim.
Stóru verkefnin
Brátt verður hafist handa við að reisa nýjan og glæsilegan grunnskóla í Mosfellsbæ, Krikaskóla, og einnig styttist í að framhaldsskóli og hjúkrunarheimili verði að veruleika. Þetta eru auðvitað stóru verkefnin hjá okkur og varða hag og velferð flestra íbúa Mosfellsbæjar.
Samstarfið hjá meirihluta okkar vinstri-grænna og sjálfstæðismanna í bæjarstjórn hefur gengið mjög vel. Gagnkvæmt traust og virðing hefur einkennt það allt frá upphafi og hefur ríkt góður andi á meðal allra sem að meirihlutanum standa. Mikill metnaður var lagður í fjárhagsáætlun flokkanna fyrir árið 2008 og eru mörg spennandi verkefni framundan í bæjarfélaginu. Skuldir á íbúa halda áfram að lækka, verja á um 775 mkr. til uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja, gert er ráð fyrir fjármunum til byggingar menningarhúss, útgjöld til fræðslumála aukast um 275 mkr, leikskólavist fimm ára barna er gjaldfrjáls og með því er áfram stuðlað að lægri kostnaði fyrir barnafjölskyldur, gert er ráð fyrir verulegri hækkun á framlagi til íþrótta- og tómstundafélaga vegna barna- og unglingastarfs sem og að frístundagreiðslur munu hækka. Ekki má gleyma fyrirhuguðum ævintýra- og útivistargarði á milli Varmár og Köldukvíslar. Auðvitað er margt fleira spennandi framundan sem of langt mál er að telja upp í þessari grein.
Umhverfismál fá veglegan sess
Hvað varðar árið sem nú er að líða í pólitíkinni hér í Mosfellsbæ og þunga áherslu bæjaryfirvalda á umhverfismál verður ekki hjá því komist að nefna áberandi og neikvæð skrif um eitt tiltekið mál sem tengdist umhverfismálum á árinu sem er nýliðið. Hér tala ég um fyrirhugaða tengibraut inn í Helgafellshverfi.
Fá mál í Mosfellsbæ hafa fengið viðlíka athygli í fjölmiðlum svo áratugum skiptir og er í raun flestum nóg um. Þessi umræða hefur á köflum farið langt út fyrir öll velsæmismörk og haft á stundum afar neikvæð áhrif á ímynd Mosfellsbæjar. Það segja mér reyndari menn að fá dæmi, ef nokkur, séu til um aðra eins aðför að einstaka bæjarfulltrúum og persónum og sú sem þar hefur verið höfð í frammi af fáeinum manneskjum í nafni umhverfissamtaka en er og hefur í raun verið hrein og klár pólitík allt frá upphafi.
Skrif í jólablöðum beggja minnihlutaflokkanna þar sem sagt var að umhverfismál sætu á hakanum undir stjórn okkar vinstri-grænna í Mosfellsbæ komu mér á óvart. Framundan er stórátak í umhverfismálum hjá bæjarfélaginu og það á m.a. fólkinu sem hélt um pennana í jólablöðum minnihlutaflokkanna að vera fullkunnugt um. Í því sambandi vil ég nefna sérstaklega 160% aukningu til umhverfismála á milli ára. Ráðinn hefur verið nýr starfsmaður, umhverfisstjóri, sem mun m.a. hafa yfirumsjón með Staðardagskrá 21. Áhersla bæjaryfirvalda á umhverfismál er mikil og sönn, ekki einungis fyrir einstaka íbúa bæjarfélagsins eða einstaka hverfi heldur alla Mosfellinga.
Bloggið
Ekki verður hjá því komist hjá mér í þessum pistli að nefna bloggið sem ég hóf að taka þátt í á árinu. Á þeim vettvangi hef ég eignast marga góða vini og hefur verið gaman að taka þátt og fylgjast með hugðarefnum og þankagangi fjölda fólks sem margt hvert hefur haft frá mörgu skemmtilegu og gefandi að segja. Auðvitað leynast svartir sauðir í blogginu eins og annarsstaðar en framhjá skrifum slíkra "snillinga" sneiðir maður einfaldlega. Bloggið er stórmerkilegt fyrirbæri og ég held að þeim fjölgi stöðugt sem taka undir það.
Ég tók strax þá ákvörðun að reyna eftir fremsta megni að nota bloggið mér meira til skemmtunar og afþreyingar heldur en að nota það t.d. eingöngu fyrir pólitískan vettvang og umræðu því tengdu. Mörgum kann eflaust að finnast það skjóta skökku við að bæjarfulltrúi geri slíkt en það verður þá bara að vera svo. Góð vinkona mín sagði við mig í góðlátlegu gríni nýlega að ég þyrfti að fara að hætta að hlæja svona mikið, gantast og grínast, svo ekki sé nú talað um að syngja á opinberum vettvangi, slíkir menn væru og yrðu aldrei teknir alvarlega. Hún sagði að ég þyrfti virkilega að endurskoða mín mál hvað þetta varðaði. Ég á völina og kvölina og það er á hreinu hvorn slaginn ég tek.
Ég óska ykkur öllum kæru vinir nær og fjær gleðilegs ár og vona að nýja árið eigi eftir að reynast ykkur öllum vel.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
P.s Vek athygli mína á því að Mosfellingur, bæjarblað okkar Mosfellinga er kominn á netið. Slóðin er mosfellingur.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
mið. 9.1.2008
Gamlar og skemmtilegar hefðir
Nú styttist í þorrablótin og við Mosfellingar ætlum að halda eitt slíkt og glæsilegt að vanda í íþróttahúsinu okkar að Varmá. Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að koma og eiga ánægjulega kvöldstund.
Bloggar | Breytt 10.1.2008 kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)