Undanfarnar vikur hef ég hlustađ á Kristján Kristjánsson (KK) í morgunútvarpinu á rás 1. Ţađ er einstaklega gaman ađ heyra hversu vel hann undir býr sig fyrir hvern ţátt og er mikil fróđleiksnáma ađ hlýđa á hann.
Kristján kynnir hvert lag og alla tónlistarmenn sem hann flytur lög eftir í ţćttinum af mikilli samviskusemi og stóískri ró. Ţetta er sérstaklega gaman og án vafa fyrir alla tónlistaráhugamenn. Kristján fer um víđan völl og er algerlega óútreiknanlegur í ţćtti sínum. Ég hlakka alltaf jafn mikiđ til ađ hlýđa á hann í útvarpinu.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
sun. 11.1.2009
9857
Mađur er gersamlega búinn ađ missa allt verđskyn. Ég hef svosem ekkert haft ţađ neitt sérstaklega öflugt um dagana. Ţetta var ekki botnfylli í innkaupakerrunni enda stóđ ađeins til ađ ná í smá nesti í skólann og eitthvađ pínu meira. Ţađ eru ekki nema nokkur ár síđan ađ mađur gat bókstaflega stútfyllt innkaupakerruna fyrir 14 - 15 ţúsund. Fyrr má nú rota en dauđrota.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 10.1.2009
Frábćrir tónleikar
Nú rétt í ţessu voru ađ enda frábćrir tónleikar á heimili okkar í Leirvogstungu. Ţannig er ađ Birna okkar er mikill ađdáandi Páls Óskars og fékk Silfursafn hans í jólagjöf.
Ţar sem ađ senn líđur nú ađ ţorrablóti okkar Mosfellinga og ég ásamt Hilmari vini mínum, ritstjóra Mosfellings, sjáum um söng og spil á ţví, ţurfti ég ađ ná í tćkjabúnađ til ađ undirbúa mig og ćfa fyrir ţorrablótiđ.
Ég var ekki fyrr búinn ađ tengja söngkerfiđ og taka smá ćfingu en Birna vildi fá míkrófóninn og bađ um ađ Páll Óskar yrđi settur á fóninn.
Allt var sett í botn og Birna hélt tónleika fyrir mömmu og pabba sem stóđu yfir í c.a. klukkustund. Hún söng nánast alla plötuna og ýmist stóđ eđa sat í stiganum á međan ţeir fóru fram, ţađ fór eftir lögunum sem hún flutti.
Ţetta var í fyrsta skipti sem viđ heyrđum Birnu syngja í míkrófón og mikiđ höfđum viđ gaman af ţví.
Ţú komst viđ hjartađ í mér elsku Birna.
Bloggar | Breytt 11.1.2009 kl. 15:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
fös. 9.1.2009
Ógleymanlegur kall
Um jólin var sýnd í sjónvarpinu, skemmtileg og fróđleg heimildarmynd, um listamanninn Dieter Roth, eftir Hilmar Oddsson.
Um ţađ leyti sem ég var ađ ljúka mínu verklega námi í bókbandi, sem hefur veriđ í kringum 1985, skall á verkfall bókagerđamanna. Ţađ varđ til ţess ađ fyrirtćkiđ sem ég lćrđi hjá, bókbandiđ Arnarfell, ţurfti eins og önnur í prent- og bókbandsgeiranum ađ stöđva alla vinnu.
Ég, sem nemi, mátti hinsvegar vinna og var ţví um tveggja vikna skeiđ eini starfsmađur fyrirtćkisins, enda eini nemi ţess á ţeim tíma. Skömmu áđur en verkfalliđ skall á, kom til okkar spennandi verkefni, sem var ađ binda inn bók, í fáum eintökum, eftir listamanninn, Dieter Roth. Nú voru góđ ráđ dýr, ţví listamađurinn var búinn ađ gera ráđ fyrir afhendingu bókarinnar frá okkur fullklárađri á tilsettum tíma rétt áđur en verkfalliđ skall á.
Ég fékk ţví ţađ verkefni ađ klára bókina fyrir Dieter á međan verkfalliđ stóđ yfir. Ţessir dagar eru mér ógleymanlegir, karlinn kom hvern dag og vakti yfir mér, nemanum á međan ég klárađi bókina. Hann var afar viđfelldin, skemmtilegur og uppbyggjandi.
Mér er minnisstćtt ađ einn daginn sem hann kom, ţá var ég ađ mála tröppurnar í stigaganginum. Eins og gengur er oft málađ í sama lit og sigaţrepinn c.a. 10 cm sóplisti fyrir ofan hvert ţrep og niđur međ hverju ţrepi. Ţar sem ég var bćđi án málningarteyps og í ákveđinni tímaţröng vegna bókar Dieters, ákvađ ég ađ mála sóplistann fríhendis niđur allan stigann og vera fljótur ađ.
Ég málađi ţví allrahanda munstur niđur međ stiganum, til ađ lítiđ bćri á skekkjum. Flest líktust ţau einhverskonar öldugangi nema eitt ţeirra sem skar sig lúmskt úr. Ţađ var tippiđ fína, sem átti ađ vera smá djók hjá mér, ungum nemanum, sem seinna átti eftir ađ vekja mismikla lukku ţegar vinnufélagarnir mćttu til vinnu. Eftir ţessu tók Dieter srax og hafđi gaman af.
Viđ áttum saman marga skemmtilega daga í bókbandinu og frá ţeim tíma er hann mér algerlega ógleymanlegur og alltaf í miklu uppáhaldi.
Dieter gaf mér ađ verki okkar loknu eina bók sem ég held mikiđ uppá.
Rúmum tuttugu árum síđar hitti ég hann aftur, Ţá kom hann ásamt fjölda fólks á veitingastađinn okkar, Álafoss föt bezt í Álafosskvosinni.
Dieter var einstakur og ógleymanlegur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
miđ. 7.1.2009
Bingi fór međ hnífasettiđ og Gummi nikkuna
Verđa ţeir ekki bara nokkuđ góđir saman á ţorrablótunum sem eru framundan hjá Framsókn og burtflognum Samfylkingarkrötum, Bingi og Gummi?
Bingi á örugglega flugbeitt hnífasettiđ ennţá, sem kemur sér vel á seiga kjammana og súra pungana og Gummi getur án vafa flutt eldfjörug lög á nikkuna.
Ađ loknu borđhaldi syngur Bingi Stál og hnífur, söng verkamannsins og Gummi flytur skemmtilegan annál sem ber heitiđ aldrei kaus ég ...................
Ţar mun Gummi vafalítiđ koma tćpitungulaust inn á hugđarefni sín sem hafa fyrst og síđast virst vera umhverfismál. Vart er hćgt ađ ímynda sér ađ sú mikla hugsjón hans fái meiri hljómgrunn en á ţorrablóti Frammarana.
Á ţessari mynd er Árna Páli ofaukiđ. Hann er enn sem komiđ er í Samfylkingunni.
Á ţessari mynd er Marsibil ofaukiđ, hún er farin í Samfylkinguna.
Fram fram sam fram samfylking,
forđum okkur háska frá
ţví rćningjar oss vilja ráđast á.
Sýnum nú hug, djörfung og dug.
Vakiđ, vakiđ vaskir menn
ţví vođa ber ađ höndum.
Sá er okkar síđast fer
mun sveipast hörđum böndum.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
ţri. 6.1.2009
Gömul mynd úr Mosó
Fyrir nokkru síđan birti ég gamla mynd hér á blogginu mínu af gömlum og góđum kennurum héđan úr sveitinni sem tók ţátt í fótboltaleik viđ nemendur sína.
Birgir D. Sveinsson fyrrverandi skólastjóri á stórt og mikiđ safn gamalla ljósmynda héđan úr bćjarfélaginu og hefur sent mér margar skemmtilegar myndir.
Ţessa sendi hann mér nú á dögunum og hér kemur mynd af liđinu sem keppti viđ kennarana.
Frá fótboltakeppni milli nemenda og kennara í Varmárskóla í apríl 1964. Fremri röđ frá vinstri: Thor Thors, Lágafelli, Valgeir Guđmundsson, Brynjar Viggósson, ég er ekki viss um ţann nćsta - Stulli? , Kristján, bróđir Ţórveigar konu Eyjólfs kennara. Í aftari röđ Lárus í Ösp, Jón Benediktsson, Bjargastöđum, Signý Jóhannsdóttir, Sveinn Sigvaldason, Ómar frá Selholti Bjarni Ásgeir Jónsson ,Bjarki Bjarnason, Páll Árnason í Reykjalundi, bróđir Ingólfs.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 5.1.2009
Nýr vinur
Ţessi heimsótti mig fyrir nokkru síđan.
Ég tók fyrir nokkru upp á ţví ađ henda út um eldhúsgluggann hjá mér einum og einum matarbita fyrir mýsnar og fuglana. Viti menn, heilu kjötstykkin og eplin voru farin ađ hverfa nokkuđ fljótlega. Ţađ vakti lengi vel athygli mína hversu drjúgir fuglarnir eđa mýsnar voru og fór ég ţví ađ auka skammtinn allverulega. Viti menn alltaf hvarf ţađ jafnharđan.
Auđvitađ komst ég síđar ađ ţví ađ ţetta var Krummi sem nćldi sér í alla bitana, hann fór bara svo hćgt í sakirnar lengi vel.
Í dag smellir hann sér niđur beint fyrir framan gluggann og kveđur ćvinlega međ vinalegu krunki, svona rétt til ađ ţakka fyrir sig og láta mig vita af ţví ađ hann sé búinn ađ klára skammtinn.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
sun. 4.1.2009
Ţökkum Samfylkingunni fyrir vel unnin störf
Oft á tíđum er grátbroslegt ađ lesa ummćli og blađaskrif forkólfa Samfylkingarinnar um ţessar mundir. Auđvitađ fer ţađ ekki framhjá nokkrum manni ađ flokkurinn beinir öllum sínum spjótum ađ Vinstri grćnum og notar allar sínar valda- og fjölmiđlaklíkur til ađ gera ţann frétta- og málflutning trúverđugan á öllum vígstöđvum.
Ţađ er einnig fróđlegt og hálf aumkunarvert ađ lesa margar vanmáttugar greinar, einstaka innmúrađra og innvígđra Samfylkingarkrata. (Eitthvađ kannast ég viđ ţetta orđalag eftir sveitastjórnarkosningarnar hér í Mosfellsbćnum.)
Ţađ virđist sem einstaka pennar, fjölmiđlamenn og bloggarar séu bókstaflega ţrćlar flokksins í ađ finna Vinstri grćnum allt til foráttu í skrifum sínum, nú sem endranćr.
Ég ţekki ţetta mćta vel héđan úr Mosfellsbćnum. Ađ okkur var öllum spjótum beint lengi vel eftir síđastliđnar sveitastjórnarkosningar af Samfylkingarkrötunum eftir ađ Framsóknarmenn slitu meirihlutaviđrćđum. Spjótin beindust ekki ađ gjörningi Framsóknarflokksins á ţeim tíma, nei, ţau beindust öll, ađ okkur Vinstri grćnum.
Einnig virtist svolítiđ töff lengi framan af ađ taka ţátt í einni ţeirri lágkúralegustu persónuađför sem elstu menn muna í bćjarfélaginu úr pólitíkinni og átti ađ tengjast einhverju sem kalla átti umhverfisvernd.
Í dag hafa allir fyrir löngu séđ ađ eitthvađ allt annađ og meira var ţar upp á teningnum. Enda hefur ţeim fćkkađ snarlega sem vilja bendla sig viđ ţann félagsskap og vinnubrögđ í dag. Svo virđist sem félagar úr Samfylkingunni í Mosfellsbć séu ţeirra á međal og fagna ég ţví.
Ljóst er ađ ummćli mín fyrir rúmu ári síđan á bćjarstjórnarfundi ţar sem ég sagđi, ađ ef ekki yrđi gerđ breyting á forystusveit Varmársamtakanna í ţeirri mynd sem ţau voru ţá, vćru dagar ţeirra taldir. Ţessi ummćli áttu viđ rök ađ styđjast, ţví alger endurnýjun hefur átt sér stađ í framvarđarsveitinni hjá samtökunum.
Gjaldkerinn, Ólafur Ragnarsson, sem hafđi ađeins nokkurra mánađa úthald í starfi sínu, virtist ađeins hafa tvö markmiđ. ţađ var ađ samtökin myndu kosta málsókn á hendur mér undirrituđum, eins og fram kom nú undir lok árs og einnig ađ taka óspart ţátt í skrifum á síđum bloggdólga. Ólafur er ekki lengur međ lyklavöld af peningakassa samtakanna og ekkert bólar á málsókninni hjá fyrrverandi gjaldkeranum, enda veit ég í raun ekkert um hvađ sú málsókn átti ađ snúast, ţađ er annađ mál. Kannski kemur ţađ einhvertímann á daginn.
Starfskraftar í félagsstarfi geta aldrei nýst vel á síđum bloggdólga, ţví síđur ţegar ţeim er lokađ jafn harđan vegna sorglegrar lágkúru og sóđaskaps. Ţađ er vćnlegra til árangurs ađ beina kröftum sínum ađ öđru. Satt ađ segja hef ég ţá trú ađ svo muni verđa á nýju ári hjá samtökunum, enda löngu mál ađ linni.
Hér ađ neđan set ég til fróđleiks kafla úr einni af ótalmörgum greinum sem birtust úr herbúđum Samfylkingarinnar í Mosfellsbć. Ţessi kom skömmu fyrir síđastliđnar alţingiskosningar.
"Vei ţeim er tekur vísvitandi ţá ákvörđun ađ gerast hćkja Sjálfstćđisflokksins eftir nćstu kosningar, sama hvađa flokkur ţađ yrđi. Kjósendur ţurfa líka ađ senda skýr skilabođ í nćstu kosningum, ţau eru ađ kjósa Samfylkinguna. Samfylkingin er trúverđugt stjórnmálafl sem hefur vilja, getu og hćfileikana til ađ leiđa nćstu ríkisstjórn jafnađarmanna eftir 12. maí nćstkomandi. Samfylkingin hefur sýnt ađ ţar sem ţeir eru viđ stjórn, ţar eru verkin látin tala. Samfylkingin ţarf ekki ađ rifja upp hverju ţau lofuđu fyrir kosningar til ţess ađ kasta ţví fram kortéri fyrir kosningar. Fólkiđ í Samfylkingunni stendur viđ kosningaloforđin og framkvćmir ţau."
Er ekki vert ađ ţakka Samfylkingunni fyrir vel unnin störf áđur en kosiđ verđur ađ nýju???
Eitt ađ lokum.
Ég hef ţá trú og hef einfaldlega tileinkađ mér ţađ vinnulag allt frá upphafi ađ samstarf byggist fyrst og síđast á gagnkvćmu trausti og virđingu og á endanum málamiđlunum ef ágreiningur er. Ekki ţví ađ útiloka samstarf viđ einhverja sem ég veit ađ hafa jafnvel ađra sýn á hlutina. Fram ađ ţessu hefur ţađ reynst mér vel.Bloggar | Breytt 5.1.2009 kl. 02:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
fös. 2.1.2009
Svakalegir Ţursar
Ţeir fóru bókstaflega á kostum félagarnir í Ţursaflokknum og allt tónlistarfólkiđ sem fram kom á tónleikunum sem sýndir voru í sjónvarpinu í gćr. Vissulega var ekki viđ öđru ađ búast, vissulega, vissulega.
Ég var einn af ţeim sem valdi frekar ađ horfa á eurovision eins og Tommi Tomm nefndi á tónleikunum. Ég er ekki frá ţví ađ ţađ hafi veriđ klúđur svona eftir á ađ hyggja. Vćri ekki reynandi ađ fá ţá félaga til ađ endurtaka leikinn? Ég gćti trúađ ađ ég léti mig hafa ţađ ađ missa af júró.
Ţetta eru einir mögnuđustu tónleikar sem ég hef séđ í sjónvarpinu.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)