Hver er fallegasta þulan?

Um það eru auðvitað skiptar skoðanir, og það væri gaman að fá viðbrögð frá ykkur lesendur góðir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: HP Foss

Mér finnst nú alltaf eitthvað sérstakt við Evu Sólan.
Óhemju falleg þula.

HP Foss, 16.11.2007 kl. 19:37

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kalli minn þú hefðir mátt tiltaka nöfnin, svo maður gæti kynnt sér þær.  Horfi allt of lítið á sjónvarp  Man samt vel eftir Rósu að prjóna meðan hún kynnti svaka heimilslegt ... eða þannig.  En hún er náttúrurlega blúnda

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.11.2007 kl. 19:59

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Ekki nokkur spurning,  Eva Sólon er fallegasta þulan. Sjálfsagt vegna þess, að hún er skyld mér.

Þorkell Sigurjónsson, 16.11.2007 kl. 20:51

4 identicon

Ellý og Rósa hafa verið í uppáhaldi hjá mér alla tíð

þær voru líflegar og frjálslegar og fallegar í framkomu

sem er mjög gott í þessu starfi.

Guðbjörg

Guðbjörg (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 22:37

5 Smámynd: Heiðar Birnir

Rósa Ingólfsdóttir ber höfuð og herðar yfir þær fögru dömur sem nú birtast á skjánum.

Heiðar Birnir, 16.11.2007 kl. 22:45

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kalli Þó, þetta er nú ekki mjög VG-legt að vera að gefa konum einkunnir eftir útliti.  Skamm

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2007 kl. 01:01

7 Smámynd: Sverrir Stormsker

Blessaður Kalli,

Fyrir nú utan hvað það er pólitískt kórrangt að spyrja svona á þessum síðustu og verstu (vinstri) tímum, semsé að hugsa um útlit kvenna, verandi í VG, þá spyr ég: Who gives a shit hvaða þula hjá ríkiskassanum er fallegust? Ætlar einhver félagi að fara að deita þá flottustu? Þarf einhver aðstoð?

Maður fær enga raunhæfa niðurstöðu þegar maður spyr um jafn afstætt hugtak og fegurð því hún er aðeins til í auga sjáandans. Þetta vita allir, er þaki?

Þú mættir gjarnan lengja "pistlana" hjá þér minn kæri og setja í þá smá "brodd" svo maður viti nokkurnveginn hvað þú ert að fara, í staðinn fyrir að henda fram spurningaöngli í von um að sem flestir bíti á. Það verður að vera eitthvað á önglinum, þó ekki væri nema vinstri græn gulrót. 

Sverrir Stormsker, 17.11.2007 kl. 04:28

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég hélt að þú værir, á degi íslenskrar tungu, að spyrja um þulu = vísu en ekki kvenmann!   Vatnsenda-Rósa fær mitt atkvæði.

Augað þitt og augað mitt,
ó, þá fögru steina.
Mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.11.2007 kl. 10:51

9 identicon

Mér líst miklu betur á skilning Jóhönnu á spurningunni...

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 11:31

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég verð að játa að ég gæti hafa hlaupið á mig.  Hm... skrýtið

Þessi er flott:

Heyrði eg í hamrinum,
hátt var þar látið
og sárt var þar grátið.
Búkonan dillaði
börnunum öllum:
Ingunni, Kingunni,
Jórunni, Þórunni,
Ísunni, Dísunni,
Einkunni, Steinkunni,
Sölkunni, Völkunni,
Siggunni, Viggunni,
Aðalvarði í Ormagarði,
Eiríki og Sveini
og dillaði Steini.
Ekki heiti eg Eiríkur
þótt þú kallir mig það.
Eg er sonur Sylgju,
sem bar mig undan bylgju.
Bylgjan og báran þær
brutu mínar árar tvær
langt fram á sjó.
Hafði eg í hægri kló
hornin bæði löng og mjó.
Skipin skullu og árar,
skall í hafi bára.
Ekki fæ eg matinn minn á málum
fyrir sjóarbárum.
Eg sökkti mér í sjó,
engum varð að grandi;
tók eg sitt í hvora kló
og keipaði upp að landi.

Og ekki er þessi síðri Kalli minn

Bokki sat í brunni,
hafði blað í munni,
hristi sína hringa,
bað fugl að syngja.
Grágæsamóðir!
ljáðu mér vængi,
svo eg geti flogið
upp til himintungla.
Tunglið, tunglið taktu mig
og berðu mig upp til skýja,
þar situr hún móðir mín 
og kembir ull nýja.
Þar sitja nunnur,
skafa gulltunnur.
Þar sitja systur,
skafa gullkistur.
Þar sitja kallar,
skafa gulldalla.
Þar sitja englar
og skafa gullteina.
Þar sitja Jóonar,
Skafa gullprjóna.
Þar sitja sveinar,
skafa gullteina.
Þar sitja Freyjur,
skafa gulltreyjur.
Þar sitja mágar,
skafa gulltágar.
Þar situr faðir minn
og skefur gullhattinn sinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2007 kl. 11:36

11 Smámynd: Karl Tómasson

Ég þakka ykkur öllum komuna og innleggin, eitthvað fór þetta nú í einhvern snúning en það er bara gaman að því. Það er gott að hlæja.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm. 

Karl Tómasson, 17.11.2007 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband