Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
þri. 30.9.2008
Komin með hatt
Þá er hún komin með hattinn sinn og tilbúin í hvað sem er. Þessi mynd var tekin kl 7:45 úr Leirvogstungu. Esjan er mörgum hugleikin og í einum texta Gildrunnar, í lagi sem reyndar heitir Vorbragur, segir:
Situr bakvið sundin
Esjan undurfríða
léttist aftur lundin
dýrðar dagar líða
Þessi mynd er einnig tekin að hausti og úr Leirvogstungu, Esjan er alltaf falleg og aldrei eins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
fös. 26.9.2008
Sorasíðu lokað
Eins og bloggið er oft skemmtilegt og gott, þá finnast því miður á því, síður aumingja og hugleysingja sem skeiða fram á ritvöllinn í skjóli nafnleyndar, oftar en ekki til þess eins að reyna að koma höggi á einstaklinga og manneskjur á sorglegan og aumkunarverðan hátt.
Sem betur fer er slíkum síðum oft lokað en því miður getur það oft tekið langan tíma og meiðyrðin og ófögnuðurinn hefur oft fengið að standa svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir áður en gripið er í taumana.
Nokkuð oft hef ég skrifað á mínu bloggi um eina slíka síðu sem hefur nú í tæp tvö ár verið haldið úti til þess eins að reyna að koma höggi á mína persónu og mín störf. Síðu sem oftast hefur gengið undir nafninu Varmársamtaka Valdi.
Lengst af virtist sem þessi síða væri eini málssvari Varmársamtakanna, í það minnsta, tjáði stjórnarfólk þeirra sig jafnvel oftar þar en á sjálfri heimasíðu samtakanna, ýmist undir fullu nafni eða ekki. Lengi vel var þessi síða einnig fyrsti linkur á heimasíðu Varmársamtakanna.
Um leið og ég fagna því að þessari sora og aumingjasíðu hafi verið lokað, þá eru það jafnframt ótrúleg vonbrigði að fólk sem hefur talað hvað hæst um málefnalega og lýðræðislega umræðu og vill láta taka sig trúanlegt og alvarlega hafi látið hafa sig út í það að leggja nafn sitt við slíkan aumingjaskap og taka þátt í slíkum skrifum og einelti.
Allt saman fullorðið fólk.
Eitt er að skrifa undir nafnleynd og halda úti þesskonar bloggsíðu, annað er að gera það í þeim eina tilgangi að vega látlaust, jafnvel að einu og sömu manneskjunni. Allt til þess eins að vega að heiðri hennar og æru. Það er furðulegt áhugamál og í raun óskiljanleg þráhyggja.
Nú hefur umræddri síðu verið lokað eins og áður segir og það vita allir, að mikið þarf að ganga á til að gripið sé til slíkra ráðstafanna.
Að baki þurfa að liggja mjög alvarleg brot.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Bloggar | Breytt 28.9.2008 kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)
fim. 25.9.2008
Frumkvöðlastarf í Mosfellsbæ
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar og Herdís Sigurjónsdóttir, formaður fræðslunefndar að lokinni fyrstu skóflustungu væntanlegs Krikaskóla. Börn og væntanlegir nemendur í Krikaskóla tóku einnig skóflustungur og á þessari mynd má sjá Björn Þráinn Þórðarson framkvæmdastjóra fræðslu- og menningarsviðs aðstoða unga stúlku. Fyrsta skóflustungan að nýjum og byltingakenndum skóla, Krikaskóla í Mosfellsbæ, var tekin í dag, fimmtudag. Stefnt er að því að hann hefji göngu sína í nýju húsnæði haustið 2009. Skólinn tók til starfa í tímabundnu húsnæði í sumar og tóku börnin sjálf, sem ganga í Krikaskóla, fyrstu skóflustunguna ásamt Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra, Karli Tómassyni forseta bæjarstjórnar og Herdísi Sigurjónsdóttur formanni fræðslunefndar. |
Þrúður Hjelm, skólastjóri Krikaskóla í sjónvarpsviðtali. Krikaskóli er frábrugðinn öllum öðrum skólum á Íslandi að því leyti að í honum verður boðið upp á nám fyrir eins til níu ára gömul börn. Skóladagurinn verður miðað við það sem þekkist í leikskólum því boðið verður upp á samfelldan skóladag frá hálf átta til rúmlega fimm. Stefnt er að því að hægt verði að veita slíka þjónustu allt árið um kring fyrir öll börnin. Nánar má lesa um Krikaskóla á mos.is Sigríður Dögg, kynningarfulltrúi Mosfellsbæjar, Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Jóhanna B. Hansen bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar og Herdís Sigurjónsdóttir, formaður bæjarráðs- og fræðslunefndar Mosfellsbæjar að lokinni fyrstu skóflusungu væntanlegs Krikaskóla. |
Bloggar | Breytt 26.9.2008 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 21.9.2008
Alltaf skemmtilegur og mikill ljúflingur
Talandi um góða söngvara eins og ég gerði í færslunni hér fyrir neðan.
Það var gaman að horfa á viðtal sjónvarpsmannsins vinsæla, Jóns Ársæls, við Eirík Hauksson söngvara.
Leiðir okkar Gildrufélaga og Eika lágu saman árið 1980, þá var hann í Start og við félagarnir í hljómsveit sem við kölluðum á þeim tíma Pass. Skömmu síðar breyttum við nafninu í Gildran. Hljómsveitirnar tóku sig saman og auglýstu stórdansleik um verslunarmannahelgina í Félagsgarði í Kjós.
Til að gera langa sögu stutta, þá mislukkaðist þetta ævintýri okkar algerlega. Það komu bókstaflega engir til að hlýða á okkur og varð stórtap á þessu ævintýri okkar. Vissulega vorum við allir miður okkar en þetta gerði það að verkum að við félagarnir áttum saman næturlangt spjall. Við spjölluðum um lífið og tilveruna. Þetta var góð og ógleymanleg stund og tengdumst við þá böndum og vináttu, sem allt frá þeirri helgi hefur verið órjúfanleg.
Síðan þá höfum við allir félagarnir í Gildrunni og Start margsinnis ruglað okkar reitum saman og spilað saman við hin ýmsu tækifæri, stór og smá. Dabbi Karls trommari, Sigurgeir Sigmunds gítarleikari, Jonni Ólafs bassaleikari, Nikki Róberts hljómborðsleikari, Eiki Hauks söngvari og Pétur Kristjánsson söngvari, skipuðu hljómsveitina Start á þessum tíma.
Start og Gildran.
Efri röð frá vinstri: Sigurgeir Sigmunds, Kristján Edelstein, Pétur Kristjáns, Nikki Róberts, Dabbi Karls og Eiki Hauks. Neðri röð frá vinstri: Billi Start, Frikki Hall, Kalli Tomm, Biggi Haralds og Jonni Ólafs.
Sigurgeir gekk síðar til liðs við Gildruna og Jonni Ólafs bassaleikari spilaði með okkur Bigga í tæp tvö ár í 66 og inn á eina plötu. Billi Start varð einn af okkur Gildrumönnum og þvældist með okkur um land allt í áraraðir. Pétur, heitinn, Kristjáns og Eiríkur tróðu upp með okkur Gildrufélögum í hálft ár á Hótel Íslandi á mörgum frábærum tónleikum og Eiríkur Spilaði og söng með okkur félögunum í Gildrunni og Gildrumezz nokkra ógleymanlega tónleika. Meðal annars á fjölmennasta dansleik sem haldin hefur verið í Mosfellsbæ. Þá var reyst við Álafoss föt bezt risatjald og haldnir tónleikar og dansleikur sem eru mörgum enn í góðu minni.
Eiríkur, eins og allir vita sem þekkja hann, er mikill öðlings drengur, hann hefur náð hæstu hæðum hérlendis og í Noregi og sá frami stafar ekki einungis af frábærri söngrödd hans heldur örugglega ekki síður af þeirri manneskju sem hann hefur að geima.
Eiríkur gantaðist með það í þættinum hjá Jóni Ársæls að hann syngi í mónó í dag eftir erfiða sjúkdómsbaráttu sína. Ég hafði sérstaklega gaman að því að heyra hann segja þetta því við göntuðumst oft með það ég og Eiki þegar við spiluðum og sungum saman að við værum í stereó þegar við værum saman komnir tveir. Báðir vinirnir búnir að ganga í gegnum sömu baráttu.
Myndin er tekin rétt áður en við fórum á svið til að spila á stórkostlegum og yfirpökkuðum tónleikum á Akureyri. Gildran ásamt Eiríki Haukssyni.
Bloggar | Breytt 22.9.2008 kl. 02:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
sun. 21.9.2008
Þegar kallinn tók bókstaflega alla í nefið
Mikið er leiðinlegt að heyra af þessum vandræðum George Michael með eiturlyfin. Það er eins og mig minni að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann er gripinn blessaður.
Ég sá hina frægu tribute tónleika Freddie Mercury árið 1992, þá bókstaflega tók George Michael alla söngvara sem þar tróðu upp og aðra sem tróðu ekki þar upp bókstaflega í nefið.
Mín tilfinning er sú að þessir tónleikar hafi gert það að verkum að fjöldin allur af fólki, hafi þá fyrst áttað sig á, hverslaga yfirburða söngvari maðurinn er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
lau. 20.9.2008
Fyrst allra bæjarfélaga til að skrifa undir Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum
Eins og fram kemur í færslu minni hér að neðan var haldið jafnréttisþing á vegum fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar í Hlégarði 18. og 19. september. Mikill og góður rómur var gerður af þinginu og þótti vel af því staðið.
Á seinni degi þingsins undirritaði Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar undir Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héröðum. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti sáttmálann þann 10. september s.l. og var Mosfellsbær þar með fyrst allra sveitarfélaga til að gera það.
Á myndinni eru: Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, Unnur V. Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs, Jóhanna B. Magnúsdóttir, formaður fjölskyldunefndar, Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar og Anna Guðrún Björnsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 19.9.2008
Landssöfnunin nær hápunkti í kvöld
|
Mig langar að minna á Landssöfnun stofnunarinnar sem er þegar hafinn og nær hápunkti þann 19. September með söfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2. Það er mikil þörf á stofnun sem þessari og í raun með ólíkindum að hún hafi verið stofnuð fyrir tilstuðlan einstaklinga, í fararbroddi þeirra mæðgna Auðar Guðjónsdóttir og Hrafnhildar G. Thoroddsen. Þær mæðgur hafa unnið ómetanlegt starf fyrir frekar daufum eyrum Mænuskaðastofnun Íslands er stofnuð af háleitri hugsjón. (fengið að láni af heimasíðunni www.isci.is)
Verndari stofnunarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir. Styrktarreikningur Mænuskaðastofnunar er 311 - 26 - 81030 Kennitala 411007-1030 " Það getur haft stórkostlega þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel efnum búin þjóð tali máli mænuskaðans við þjóðir heimsins og beiti pólitískum áhrifum sínum til framfara á þessu sviði læknavísindanna " |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fim. 18.9.2008
Moggabloggið, fjandi menningarlífsins?
Upp kom nýlega sérstakt mál á Moggablogginu. Lokað var fyrir þann möguleika hjá ötulum bloggara, Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur, (blekpenni.blog.is) að geta bloggað við fréttir. Ekki stóð á viðbrögðum félaga hennar úr bloggheimum að lýsa yfir furðu sinni á þessum gjörningi ritstjórnar Moggabloggsins.
Á annað hundrað manns hafa tjáð sig um málið og virðist sem yfirgnæfandi meirihluti eigi ekki til orð yfir þessari ákvörðun.
Árni Matthíasson ritstjóri Moggabloggs sendi Helgu skeyti þar sem fram kemur ástæða lokunarinnar og má sjá hana á síðu Helgu.
Þessi skrif ryfjuðu upp fyrir mér mál sem tengist mér persónulega og skrifum Árna Matt. Þannig var að Árni Matthíasson var eitt sinn ræðumaður á baráttutónleikum sem haldnir voru í Reykjavík þar sem verið var að mótmæla vegi sem átti reyndar að leggja í Mosfellsbæ.
Á þessum tónleikum var ein af uppáhaldshljómsveitum Árna, Sigurrós, aðalnúmerið en hljómsveitin Sigurrós kom talsvert við sögu í lokunarumræðunni hjá Helgu Guðrúnu.
Árni sagði á þessum tónleikum m.a. í ræðu sinni orðrétt.
"Það er svo gráglettni örlaganna að Gildrumaðurinn Karl Tómasson sé einn helsti fjandi menningarlífsins í kvosinni, nú orðinn forseti bæjarstjórnar".
Árni bætti svo um betur og skrifaði þessi ummæli sín einnig á bloggið sitt.
Ég vellti því nú fyrir mér hvort er saknæmara eða á lægra plani, að kalla mann fjanda menningarlífs í bæjarfélagi sínu eins og Árni Matt gerði, eða blogga við óviðeigandi frétt.
Um það snýst þessi færsla mín í raun.
Ég hef aldrei átt í útistöðum við Árna Matt, kvorki fyrr né síðar, öðru nær. Árni féll hinsvegar, á þessum tónleikum og á bloggi sínu, í þá gildru eins og svo margir aðrir á sínum tíma, að taka afstöðu í máli sem hann þekkti greinilega lítið til, ef nokkuð, ef marka má skrif hans.
Að taka afstöðu til mála eða mynda sér skoðun án þekkingar og skeyða fram á ritvöllinn með hástemdar yfirlýsingar og niðrandi skrif er alltaf slæmt. Ekki bætir það heldur úr skák ef slík afstaða er einungis tekin, jafnvel vegna afstöðu stórstjarna eða þátttöku þeirra í baráttunni.
Slíkt er á góðri íslenskri tungu kallað snobb.
Það er engan vegin sæmandi ritstjóra Moggabloggsins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 17.9.2008
Jafnréttisþing í Mosfellsbæ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 17.9.2008
Mænan er ráðgáta
Mænuskaðastofnun Íslands
|
Mig langar að minna á Landssöfnun stofnunarinnar sem er þegar hafinn og nær hápunkti þann 19. September með söfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2. Það er mikil þörf á stofnun sem þessari og í raun með ólíkindum að hún hafi verið stofnuð fyrir tilstuðlan einstaklinga, í fararbroddi þeirra mæðgna Auðar Guðjónsdóttir og Hrafnhildar G. Thoroddsen. Þær mæðgur hafa unnið ómetanlegt starf fyrir frekar daufum eyrum Mænuskaðastofnun Íslands er stofnuð af háleitri hugsjón. (fengið að láni af heimasíðunni www.isci.is)
Verndari stofnunarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir. Styrktarreikningur Mænuskaðastofnunar er 311 - 26 - 81030 Kennitala 411007-1030 " Það getur haft stórkostlega þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel efnum búin þjóð tali máli mænuskaðans við þjóðir heimsins og beiti pólitískum áhrifum sínum til framfara á þessu sviði læknavísindanna " |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Mínar síður
- Mosfellsbær Heimasíða Mosfellsbæjar
- Mosfellingur Bæjarblaðið Mosfellingur
- Vinstri Græn Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Eldri færslur
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
á netinu
Bloggvinir
-
Hulda Bergrós Stefánsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir (anno)
-
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Axel Jón Fjeldsted
-
Bjarni Bragi Kjartansson
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Benedikt Halldórsson
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Brynjólfur Þorvarðsson
-
BLOGGER
-
Hrannar Baldursson
-
Eyþór Arnalds
-
Viðar Eggertsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eyþór Árnason
-
Fjarki
-
Baldur Fjölnisson
-
Gestur Valur Svansson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
gudni.is
-
Guðrún B.
-
Guðmundur H. Bragason
-
Guðmundur Rafnkell Gíslason
-
Gústav J. Daníelsson
-
Hallgrimur Viðar Arnarson
-
Haukur Nikulásson
-
Heimskyr
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Hermann Ingi Hermannsson
-
Sigga Hjólína
-
Hlynur Hallsson
-
HP Foss
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
JEA
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhann Kristjánsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Bergur Thorberg
-
Þorkell L. Þorkelsson
-
Pétur Björgvin
-
Kristján Kristjánsson
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Valdemarsson
-
Guðjón H Finnbogason
-
Lárus G
-
Laugheiður Gunnarsdóttir
-
Lilja Kjerúlf
-
Linda Samsonar Gísladóttir
-
Helga Sveinsdóttir
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Már Byron Haraldsson
-
Alfreð Símonarson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Markús frá Djúpalæk
-
Þráinn Árni Baldvinsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Mummi Guð
-
Myndlistarfélagið
-
Jón Svavarsson
-
Barack Obama
-
Guðbjörg Erlingsdóttir
-
Pálmi Gunnarsson
-
Paul Nikolov
-
Vilborg
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
...désú
-
Huld S. Ringsted
-
Rósa Harðardóttir
-
Rúnar Birgir Gíslason
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Gammur drils
-
Matti sax
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Óskar V Kristjánsson
-
Guðmundur St. Valdimarsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Gunnar Ólafur Kristleifsson
-
Sóley Valdimarsdóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Steini Briem
-
Sverrir Stormsker
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þrúður Finnbogadóttir
-
TómasHa
-
Halldór Egill Guðnason
-
Úrsúla Jünemann
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Guðfríður Lilja
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Aðalheiður Haraldsdóttir
-
Auðunn Hilmarsson
-
Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Haraldsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Dunni
-
Einar Áskelsson
-
Elísabet Sigmarsdóttir
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gulli litli
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Halldór Baldursson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
hilmar jónsson
-
Hjördís Kvaran Einarsdóttir
-
Jack Daniel's
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Pétur
-
kreppukallinn
-
Leikhópurinn Lotta
-
Ólafur Th Skúlason
-
Páll Rúnar Elíson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
steinimagg
-
Sveinn Arnar Sæmundsson
-
Þórður Björn Sigurðsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.3.): 7
- Sl. sólarhring: 189
- Sl. viku: 1152
- Frá upphafi: 349989
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 455
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



stjórnvalda hingað til, en einstaklingar og fyrirtæki hafa eitthvað tekið við sér. Starf þeirra mæðgna hefur vakið athygli á alþjóðavísu og í raun meiri en á Íslandi.






